Lífið

Japönsk stjarna handtekin nakin

Töffarinn Tsuyoshi Kusanagi.
Töffarinn Tsuyoshi Kusanagi.
Ein þekktasta stjarna Japans, Tsuyoshi Kusanagi, var handtekinn í dag fyrir ósiðsamlegt athæfi en hann fannst drukkinn og nakinn í almenningsgarði í Tókýó.

Kusanagi er söngvari í strákabandinu SMAP. Hann skaust upp á stjörnuhimininn í Japan fyrir tæplega 20 árum og er í dag ein skæðasta stjarna landsins.

Söngvarinn hefur komið fram í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þá hefur bílaframleiðandinn Toyota ítrekað fengið hann til að auglýsa framleiðslu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.