Vék sæti frekar en að kjósa gegn meirihlutanum Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 22. júlí 2009 14:10 Lilja Mósesdóttir, varaformaður efnahags- og skattanefndar. Mynd/Pjetur
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, kaus að kalla inn varamann á nefndarfund efnahags- og skattanefndar í dag frekar en að kjósa gegn meirihlutaáliti nefndarinnar um Icesave-frumvarpið. „Mér finnst skipta meira máli að mín rök komi fram í þingsal en í nefnd," segir Lilja og bætir við að hún hafi viljað fara óbundin til atkvæðagreiðslu um málið. Lilja segist ekki hafa verið sammála nefndaráliti efnahags- og skattanefndar. Hún telji ekki jafnmikla áhættu af því að hafna samningnum og aðrir í meirihlutanum og vildi því ekki skrifa undir álitið. Þá hafi hún verið ósátt við að frumvarpið hafi verið afgreitt úr nefndinni í dag og því vísað til fjárlaganefndar. Hún hafi viljað að vinna við frumvarpið héldi áfram í efnahags- og skattanefnd, en taldi ekki þörf á að tefja málið vegna þessa faglega metnaðar síns. En hefði verið heiðarlegra að greiða atkvæði gegn nefndarálitinu fyrst hún var því ósammála, en að kalla inn varamann á nefndarfundinn? „Þá hefði það þýtt að ég væri að segja mig úr stjórnarliðinu. Ég vil ekki blanda Icesave-málinu saman við ríkisstjórnarmynstur á þessu stigi," segir Lilja að lokum, en segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Lilja segist ekki hafa verið beitt þrýstingi vegna málsins.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira