Úr vörn í sókn Einar Skúlason skrifar 27. nóvember 2009 06:00 Í upphafi ársins vorum við framsóknarmenn samankomnir á fjölmennasta og glæsilegasta flokksþingi Framsóknarflokksins fyrr og síðar. Þar var kjörin ný forysta og margar breytingar gerðar á stefnu flokksins. Í kjölfarið sóttum við fram í kosningum til Alþingis og það skilaði sér í því að tveir þingmenn koma nú úr röðum framsóknarmanna í Reykjavík. Ekki mátti miklu muna að undirritaður yrði sá þriðji. Við höfum tækifæri til þess, framsóknarmenn, að sækja fram í málefnum borgarinnar í vor og fylgja eftir þeim árangri sem náðist í alþingiskosningum á liðnu vori. Við höfum tækifæri til þess að snúa vörn í sókn með því að gera afgerandi breytingar á framboðslistanum á Hótel Loftleiðum á morgun. Við eigum að sækja fram með málefnin okkar í forgrunni í borgarstjórnarkosningunum 29. maí 2010. Ég vil leggja áherslu á málefni fólksins í borginni, börn, unglinga, aldraða og aðra viðkvæma hópa. Þá vil ég skapa umhverfisvænt og öruggt umhverfi fyrir íbúana, auk þess að efla enn frekar skilyrði fyrir vexti í nýsköpunar- og sprotagreinum, eins og orkugeira, líftækniiðnaði og hugbúnaðarframleiðslu. Þá vil ég reka aðhaldssama fjármálastefnu, án þess að grunnþjónustu sé raskað, en skilgreina jafnframt betur hvað skuli felast í henni. Um þá skilgreiningu þarf að ríkja sátt. Á morgun verður ákveðið hvort Framsóknarflokkurinn ætlar að vera í sókn eða vörn í borgarmálunum. Með þá sannfæringu mína að leiðarljósi að sókndjörf og ábyrg velferðar- og umbótastefna Framsóknarflokksins eigi brýnt erindi við borgarbúa býð ég mig fram til að leiða lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Einar Skúlason býður sig fram í 1. sæti framboðslista Framsóknarflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 2010. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Í upphafi ársins vorum við framsóknarmenn samankomnir á fjölmennasta og glæsilegasta flokksþingi Framsóknarflokksins fyrr og síðar. Þar var kjörin ný forysta og margar breytingar gerðar á stefnu flokksins. Í kjölfarið sóttum við fram í kosningum til Alþingis og það skilaði sér í því að tveir þingmenn koma nú úr röðum framsóknarmanna í Reykjavík. Ekki mátti miklu muna að undirritaður yrði sá þriðji. Við höfum tækifæri til þess, framsóknarmenn, að sækja fram í málefnum borgarinnar í vor og fylgja eftir þeim árangri sem náðist í alþingiskosningum á liðnu vori. Við höfum tækifæri til þess að snúa vörn í sókn með því að gera afgerandi breytingar á framboðslistanum á Hótel Loftleiðum á morgun. Við eigum að sækja fram með málefnin okkar í forgrunni í borgarstjórnarkosningunum 29. maí 2010. Ég vil leggja áherslu á málefni fólksins í borginni, börn, unglinga, aldraða og aðra viðkvæma hópa. Þá vil ég skapa umhverfisvænt og öruggt umhverfi fyrir íbúana, auk þess að efla enn frekar skilyrði fyrir vexti í nýsköpunar- og sprotagreinum, eins og orkugeira, líftækniiðnaði og hugbúnaðarframleiðslu. Þá vil ég reka aðhaldssama fjármálastefnu, án þess að grunnþjónustu sé raskað, en skilgreina jafnframt betur hvað skuli felast í henni. Um þá skilgreiningu þarf að ríkja sátt. Á morgun verður ákveðið hvort Framsóknarflokkurinn ætlar að vera í sókn eða vörn í borgarmálunum. Með þá sannfæringu mína að leiðarljósi að sókndjörf og ábyrg velferðar- og umbótastefna Framsóknarflokksins eigi brýnt erindi við borgarbúa býð ég mig fram til að leiða lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Einar Skúlason býður sig fram í 1. sæti framboðslista Framsóknarflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 2010.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar