Upptekin við önnur störf 20. ágúst 2009 05:30 Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi, skrifar grein í Fréttablaðið 13. ágúst sl. og gerir tilraun til að svara þeim athugasemdum sem ég hef gert við fyrri skrif hennar um málefni borgarinnar og Orkuveitu Reykjavíkur. Sala á hlut borgarinnar í LandsvirkjunSigrún Elsa er þeirrar skoðunar að sala á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun hafi verið borginni óhagstæð. Ég fullyrði að fáir eru á hennar bandi og salan hefur nú gert borginni betur kleift að komast frá þeim þrengingum sem önnur sveitarfélög eru að ganga í gegnum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar. Salan var gerð á hárréttum tíma og víst er að ríkið yrði ekki í stakk búið að kaupa hlutinn á næstu árum. Ábyrgðargjald LandsvirkjunarKjarni málsins er sá að ábyrgðargjaldið er greitt með réttum hætti til borgarinnar. Sigrún Elsa gaf annað í skyn en Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur leiðrétt rangfærslur hennar um málið. Sigrún Elsa lofar að Samfylkingin berjist fyrir því að ábyrgðargjald það sem Landsvirkjun greiðir borginni verði hækkað. Í þessu vil ég styðja hana. Barátta Sigrúnar Elsu og Samfylkingarinnar ætti að vera auðveld þar sem stjórnarformaður Landsvirkjunar kemur úr röðum Samfylkingarinnar, iðnaðarráðherra kemur úr röðum Samfylkingarinnar og forsætisráðherra kemur úr röðum Samfylkingarinnar. Reykjavíkurborg getur alveg þegið hærra ábyrgðargjald. Verkefni OR/REI á FilippseyjumSigrún Elsa reynir að tengja mig við milljarða fjárfestingu á Filippseyjum, sem 100 daga meirihlutinn undir forystu Samfylkingarinnar ráðgerði. Í minni borgarstjóratíð voru engin fyrirheit eða samningar gerðir um kaup á hlutabréfum fyrir 12,5 milljarða króna í orkufyrirtæki þar sem stóð í einkavæðingarferli. Segist hún hvergi hafa komið nærri og verið upptekin við önnur störf meðan um þetta var vélað. Gott og vel. Þetta er nokkuð sérkennilegt miðað við þær kröfur sem þær stöllur Sigrún Elsa og Svandís Svavarsdóttir vildu hafa í öllum málum: Opin, gegnsæ og lýðræðisleg vinnubrögð. Er það í raun svo að Sigrún Elsa og Svandís hafi ekki vitað að til stæði að OR/REI keypti hlutabréf fyrir 12,5 milljarða króna í orkufyrirtæki á Filippseyjum sem stóð í einkavæðingarferli þrátt fyrir að þær stöllur hafi á þessum tíma verið að gera eitthvað annað? Ég skoraði á Sigrúnu Elsu að tjá sig um vinnulag 100 daga meirihlutans þegar fjallað var um tugmilljarða fjárfestingu REI/OR á Filippseyjum í stjórn Orkuveitunnar en það vill hún sýnilega ekki. Hún veit að vinnubrögðin standast ekki skoðun. Blessuð Sigrún Elsa.Höfundur er forseti borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar