Upplýsingar vegna frétta af REI Hjörleifur B. Kvaran skrifar 24. mars 2009 13:23 Í mánudagsútgáfu Fréttablaðsins er fjallað um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja vegna jarðhitaverkefna vestan hafs á vegum Iceland America Energy (IAE), sem um árabil hefur verið í eigu íslenskra aðila. Má skilja fréttina þannig að Reykjavík Energy Invest (REI) hafi lagt tæpa tvo milljarða króna í orkuútrás í Bandaríkjunum og tapað þeim fjármunum. Það er ekki rétt. Stjórn REI, sem skipuð er fulltrúum meirihluta og minnihluta í borgarstjórn, er samhuga í því að standa vörð um verðmætin í fyrirtækinu við aðstæður sem að sumu leyti eru hagfelldar, að öðru leyti ekki. IAE var stofnað árið 2004 sem eitt af dótturfélögum Enex hf. og hefur frá upphafi unnið að þróun jarðhitaverkefna í Bandaríkjunum. Auk IAE stofnaði Enex dótturfélög í Þýskalandi og Kína og hafa þau unnið að þróun fjölmargra jarðhitaverkefna. Erfiðlega hefur þó gengið að fjármagna slík þróunarverkefni. Geysir Green Energy hefur farið með ráðandi eignarhlut í Enex og dótturfélögum þess frá árinu 2007. Í ársbyrjun 2008 hófust viðræður milli fyrirtækjanna um framtíð Enex og átti Geysir þá 73% hlutafjár í Enex en REI var minnihlutaeigandi með 26%. Ákveðið var að skipta eignum og verkefnum Enex á milli eigenda í byrjun þessa árs enda staða félagsins mjög tvísýn hvað varðar rekstur og fjármögnun einstakra verkefna. Við það kæmi í hlut REI að verja þau verðmæti sem skapast hafa með framlögum Orkuveitu Reykjavíkur til Enex og forvera þess allt frá árinu 1969. Samkomulag náðist um að REI yfirtæki hlut Enex í dótturfélaginu í Bandaríkjunum en Geysir fengi verkefni Enex í Þýskalandi og aukinn hlut í Enex-Kína og á Filippseyjum. Á vegum REI er nú verið að skoða framtíð IAE, m.a. hvort forsendur eru fyrir því að fá nýja fjárfesta að því eða einstökum verkefnum þess. Sú vinna hefur staðið yfir þann mánuð sem REI hefur farið með meirihlutavald í IAE. Á næstu vikum og mánuðum ræðst hvernig úr rætist. Staða fjármálamarkaða hefur vitaskuld áhrif á verkefni sem þetta. Á móti kemur stóraukinn áhugi á nýtingu jarðhita til orkuframleiðslu í Bandaríkjunum. Markmið REI, samkvæmt stefnu nýrrar stjórnar fyrirtækisins, sem tók við í mars 2008, er að standa við gerðar skuldbindingar en hverfa frá hugmyndum um að Orkuveitan leggi fram marga milljarða króna til orkuverkefna erlendis. Höfundur er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Lág laun og álag í starfsumhverfi valda skorti á fagfólki Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir Skoðun Grímulaus aðför að landsbyggðinni Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvar á ég heima? Aðgengi fólks með POTS að heilbrigðisþjónustu Hugrún Vignisdóttir Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson Skoðun Hvað veit Hafró um verndun hafsvæða? Kjartan Páll Sveinsson Skoðun Málfrelsið Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun „Við getum ekki": Þrjú orð sem svíkja börn á hverjum degi Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Ógnar stjórnleysi á landamærunum íslensku samfélagi? Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun Konukot Sigmar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Lág laun og álag í starfsumhverfi valda skorti á fagfólki Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hvað veit Hafró um verndun hafsvæða? Kjartan Páll Sveinsson skrifar Skoðun Ógnar stjórnleysi á landamærunum íslensku samfélagi? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grímulaus aðför að landsbyggðinni Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Menningarstríð í borginni Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Málfrelsið Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Austurland lykilhlekkur í varnarmálum Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Áhyggjur af fyrirhugaðri sameiningu Hljóðbókasafns Íslands Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Fjárfesting í færni Maj-Britt Hjördís Briem skrifar Skoðun Hvar á ég heima? Aðgengi fólks með POTS að heilbrigðisþjónustu Hugrún Vignisdóttir skrifar Skoðun Lærum af reynslunni Hlöðver Skúli Hákonarson skrifar Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason skrifar Skoðun „Við getum ekki": Þrjú orð sem svíkja börn á hverjum degi Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson skrifar Skoðun Tími formanns Afstöðu liðinn Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun Þögnin sem mótar umræðuna Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Minni sóun, meiri verðmæti Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskennd tiltekt Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Konukot Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers vegna ekki bókun 35? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar – rolluþjóð með framtíð í hampi Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Við hvað erum við hrædd? Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson skrifar Skoðun Höfuðborgin eftir fimmtíu ár, hvað erum við að tala um? Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar Skoðun Einn pakki á dag Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Látum verkin tala! Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hörmungarnar sem heimurinn hunsar Ragnar Schram skrifar Skoðun Dýrasti staður í heimi Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð ríka samfélagsins Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Í mánudagsútgáfu Fréttablaðsins er fjallað um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja vegna jarðhitaverkefna vestan hafs á vegum Iceland America Energy (IAE), sem um árabil hefur verið í eigu íslenskra aðila. Má skilja fréttina þannig að Reykjavík Energy Invest (REI) hafi lagt tæpa tvo milljarða króna í orkuútrás í Bandaríkjunum og tapað þeim fjármunum. Það er ekki rétt. Stjórn REI, sem skipuð er fulltrúum meirihluta og minnihluta í borgarstjórn, er samhuga í því að standa vörð um verðmætin í fyrirtækinu við aðstæður sem að sumu leyti eru hagfelldar, að öðru leyti ekki. IAE var stofnað árið 2004 sem eitt af dótturfélögum Enex hf. og hefur frá upphafi unnið að þróun jarðhitaverkefna í Bandaríkjunum. Auk IAE stofnaði Enex dótturfélög í Þýskalandi og Kína og hafa þau unnið að þróun fjölmargra jarðhitaverkefna. Erfiðlega hefur þó gengið að fjármagna slík þróunarverkefni. Geysir Green Energy hefur farið með ráðandi eignarhlut í Enex og dótturfélögum þess frá árinu 2007. Í ársbyrjun 2008 hófust viðræður milli fyrirtækjanna um framtíð Enex og átti Geysir þá 73% hlutafjár í Enex en REI var minnihlutaeigandi með 26%. Ákveðið var að skipta eignum og verkefnum Enex á milli eigenda í byrjun þessa árs enda staða félagsins mjög tvísýn hvað varðar rekstur og fjármögnun einstakra verkefna. Við það kæmi í hlut REI að verja þau verðmæti sem skapast hafa með framlögum Orkuveitu Reykjavíkur til Enex og forvera þess allt frá árinu 1969. Samkomulag náðist um að REI yfirtæki hlut Enex í dótturfélaginu í Bandaríkjunum en Geysir fengi verkefni Enex í Þýskalandi og aukinn hlut í Enex-Kína og á Filippseyjum. Á vegum REI er nú verið að skoða framtíð IAE, m.a. hvort forsendur eru fyrir því að fá nýja fjárfesta að því eða einstökum verkefnum þess. Sú vinna hefur staðið yfir þann mánuð sem REI hefur farið með meirihlutavald í IAE. Á næstu vikum og mánuðum ræðst hvernig úr rætist. Staða fjármálamarkaða hefur vitaskuld áhrif á verkefni sem þetta. Á móti kemur stóraukinn áhugi á nýtingu jarðhita til orkuframleiðslu í Bandaríkjunum. Markmið REI, samkvæmt stefnu nýrrar stjórnar fyrirtækisins, sem tók við í mars 2008, er að standa við gerðar skuldbindingar en hverfa frá hugmyndum um að Orkuveitan leggi fram marga milljarða króna til orkuverkefna erlendis. Höfundur er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Lág laun og álag í starfsumhverfi valda skorti á fagfólki Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir Skoðun
Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun
Skoðun Lág laun og álag í starfsumhverfi valda skorti á fagfólki Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar
Skoðun Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason skrifar
Skoðun Pólitískt ofbeldi, fasismi og tvískinnungur valdsins Davíð Aron Routley,Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Örugg heilbrigðisþjónusta fyrir öll börn frá upphafi - Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis 2025 María Heimisdóttir skrifar
Lág laun og álag í starfsumhverfi valda skorti á fagfólki Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir Skoðun
Hvítþvottur í skugga samstöðu – þegar lögreglan mótmælir því sem hún sjálf reynir að þagga niður Daníel Þór Bjarnason Skoðun