Blekkingaleikur stjórnarformanns 6. nóvember 2009 06:00 Undanfarið ár hafa framkvæmdir Orkuveitunnar að miklu leyti verið fjármagnaðar með innlendum yfirdráttarlánum. Vegna þessa hefur fjármagnskostnaður fyrirtækisins hækkað verulega. Aðrir þættir hafa einnig orðið til að veikja fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Skemmst er að minnast þess að OR seldi skúffufyrirtækinu Magma Energy Sweden bréf í HS Orku með minnst 5 milljarða tapi. Snemma á árinu var tekin sú pólitíska ákvörðun að greiða verktökum 800 milljónir umfram samninga og nú krefst borgarstjóri 2 milljarða í arðgreiðslur af taprekstri fyrirtækisins. En til samanburðar var allur launakostnaður OR 4,8 milljarðar á árinu 2008. Þessar misráðnu pólitísku ákvarðanir hafa allar skaðað fjárhagsstöðu OR og aukið líkur á almennum gjaldskrárhækkunum. OR semur nú við Norðurál um verulega hækkun á raforkuverði til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Hækkunin kemur til vegna þess að kostnaður við Hverahlíðarvirkjun var vanmetinn, fjármagnskostnaður hefur aukist og kostnaðarsamar tafir hafa orðið einkum vegna erfiðleika við fjármögnun verkefnisins. Loks glittir í að lán frá Evrópska fjárfestingabankanum skili sér til OR, en þakka má bréfaskriftum fjármálaráðherra til bankans, lausn Icesave-deilunnar og endurskoðun AGS fyrir að lánið er nú loks að skila sér. Þrátt fyrir þessi gleðitíðindi er langt í land með að Hverahlíðarvirkjun og raunar líka Hellisheiðarvirkjun séu fullfjármagnaðar en fyrr verður ekki haldið áfram með Hverahlíðarvirkjun auk þess sem ganga þarf frá bindandi orkusölusamningum áður en lengra er haldið. Ég sé mig tilneydda til að fara yfir þessi viðkvæmu mál hér þar sem ósvífin framganga stjórnarformanns OR hefur leitt umræðuna á villigötur. Seinkun á virkjunarframkvæmdum OR, óvissa um hvort hægt verði að taka á móti fimm aflvélum frá Mitsubishi, aukinn kostnaður OR vegna þessa, fyrirliggjandi hækkun á orkuverði og óvissa um álver í Helguvík hefur ekkert með umhverfismat á suðvesturlínu eða aðrar ákvarðanir ríkistjórnarinnar að gera. Tilraunir stjórnarformanns OR til að halda öðru fram er ómaklegur blekkingaleikur. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður í OR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Undanfarið ár hafa framkvæmdir Orkuveitunnar að miklu leyti verið fjármagnaðar með innlendum yfirdráttarlánum. Vegna þessa hefur fjármagnskostnaður fyrirtækisins hækkað verulega. Aðrir þættir hafa einnig orðið til að veikja fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Skemmst er að minnast þess að OR seldi skúffufyrirtækinu Magma Energy Sweden bréf í HS Orku með minnst 5 milljarða tapi. Snemma á árinu var tekin sú pólitíska ákvörðun að greiða verktökum 800 milljónir umfram samninga og nú krefst borgarstjóri 2 milljarða í arðgreiðslur af taprekstri fyrirtækisins. En til samanburðar var allur launakostnaður OR 4,8 milljarðar á árinu 2008. Þessar misráðnu pólitísku ákvarðanir hafa allar skaðað fjárhagsstöðu OR og aukið líkur á almennum gjaldskrárhækkunum. OR semur nú við Norðurál um verulega hækkun á raforkuverði til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Hækkunin kemur til vegna þess að kostnaður við Hverahlíðarvirkjun var vanmetinn, fjármagnskostnaður hefur aukist og kostnaðarsamar tafir hafa orðið einkum vegna erfiðleika við fjármögnun verkefnisins. Loks glittir í að lán frá Evrópska fjárfestingabankanum skili sér til OR, en þakka má bréfaskriftum fjármálaráðherra til bankans, lausn Icesave-deilunnar og endurskoðun AGS fyrir að lánið er nú loks að skila sér. Þrátt fyrir þessi gleðitíðindi er langt í land með að Hverahlíðarvirkjun og raunar líka Hellisheiðarvirkjun séu fullfjármagnaðar en fyrr verður ekki haldið áfram með Hverahlíðarvirkjun auk þess sem ganga þarf frá bindandi orkusölusamningum áður en lengra er haldið. Ég sé mig tilneydda til að fara yfir þessi viðkvæmu mál hér þar sem ósvífin framganga stjórnarformanns OR hefur leitt umræðuna á villigötur. Seinkun á virkjunarframkvæmdum OR, óvissa um hvort hægt verði að taka á móti fimm aflvélum frá Mitsubishi, aukinn kostnaður OR vegna þessa, fyrirliggjandi hækkun á orkuverði og óvissa um álver í Helguvík hefur ekkert með umhverfismat á suðvesturlínu eða aðrar ákvarðanir ríkistjórnarinnar að gera. Tilraunir stjórnarformanns OR til að halda öðru fram er ómaklegur blekkingaleikur. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður í OR.
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar