Óstjórn í borginni Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar 1. desember 2009 06:00 Drög að fjárhagsáætlun eru nú í mótun þar sem við blasir sársaukafullur niðurskurður. Meðal annars í mennta- og leikskólamálum. Stjórnlaus hækkun húsnæðiskostnaðar á kjörtímabilinu eykur mjög á vandann og gerir niðurskurðinn sársaukafyllri. Á kjörtímabilinu hefur kostnaður borgarinnar vegna húsnæðis rokið upp úr öllu valdi og nálega tvöfaldast. Var 4,6 milljarðar í árslok 2005, síðasta heila árið sem Reykjavíkurlistinn var við völd, en er í árslok 2009, eftir kjörtímabil sjálfstæðismanna 8,8 milljarðar. Þessi hækkun er í engu samræmi við verðlagsþróun. Þetta þýðir að nú þegar skera þarf niður kemur það enn harðar niður á þjónustu borgarinnar við borgarbúa. Húsnæðiskostnaður menntasviðs hefur til dæmis aukist á kjörtímabilinu úr 2,1 milljarði í 4,1 milljarð. Þetta tekur verulega í nú þegar boðaður hefur verið niðurskurður í menntamálum. En þar sem ekki er hægt að skera niður húsnæðiskostnaðinn, sem hefur vaxið frá upphafi kjörtímabilsins úr 16% af heildarútgjöldum menntasviðs í 22%, mun niðurskurðurinn bitna harðar á innra starfi skólans. Samfylkingin lagði fram eftirfarandi tillögu við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar, fyrir um ári síðan: Borgarstjórn samþykkir að við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir 1. mars verði unnar tillögur að hagræðingu í húsnæðismálum þannig að 2-5% sparnaður náist á næstu þremur árum. Sérstaklega verði hugað að bættri nýtingu húsnæðis og endurskoðun dýrra leigusamninga við einkaaðila sem taka til sín mikið fé, s.s. Höfðatorg, Íþrótta- og sýningahöll og Egilshöll í Grafarvogi. Meirihlutinn hundsaði tillöguna eins og aðrar góðar tillögur frá minnihlutanum. Eftir fyrirspurnir og eftirgangsmuni hefur einnig fengist staðfest að verklagsreglum hefur ekki verið fylgt þegar kemur að ákvarðanatöku um nýframkvæmdir. Þannig hafa framkvæmdir verið samþykktar án þess að nokkur grein hafi verið gerð fyrir rekstrarkostnaði (innri leigu) sem af þeim leiðir eða sá kostnaður samþykktur. Þannig hefur húsnæðiskostnaður aukist í blindni hjá borginni eftir að sjálfstæðismenn tóku við stjórn hennar, þannig er ekki hægt að reka sveitarfélag. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 28.06.2025 Halldór Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Skoðun Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson skrifar Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Sjá meira
Drög að fjárhagsáætlun eru nú í mótun þar sem við blasir sársaukafullur niðurskurður. Meðal annars í mennta- og leikskólamálum. Stjórnlaus hækkun húsnæðiskostnaðar á kjörtímabilinu eykur mjög á vandann og gerir niðurskurðinn sársaukafyllri. Á kjörtímabilinu hefur kostnaður borgarinnar vegna húsnæðis rokið upp úr öllu valdi og nálega tvöfaldast. Var 4,6 milljarðar í árslok 2005, síðasta heila árið sem Reykjavíkurlistinn var við völd, en er í árslok 2009, eftir kjörtímabil sjálfstæðismanna 8,8 milljarðar. Þessi hækkun er í engu samræmi við verðlagsþróun. Þetta þýðir að nú þegar skera þarf niður kemur það enn harðar niður á þjónustu borgarinnar við borgarbúa. Húsnæðiskostnaður menntasviðs hefur til dæmis aukist á kjörtímabilinu úr 2,1 milljarði í 4,1 milljarð. Þetta tekur verulega í nú þegar boðaður hefur verið niðurskurður í menntamálum. En þar sem ekki er hægt að skera niður húsnæðiskostnaðinn, sem hefur vaxið frá upphafi kjörtímabilsins úr 16% af heildarútgjöldum menntasviðs í 22%, mun niðurskurðurinn bitna harðar á innra starfi skólans. Samfylkingin lagði fram eftirfarandi tillögu við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar, fyrir um ári síðan: Borgarstjórn samþykkir að við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir 1. mars verði unnar tillögur að hagræðingu í húsnæðismálum þannig að 2-5% sparnaður náist á næstu þremur árum. Sérstaklega verði hugað að bættri nýtingu húsnæðis og endurskoðun dýrra leigusamninga við einkaaðila sem taka til sín mikið fé, s.s. Höfðatorg, Íþrótta- og sýningahöll og Egilshöll í Grafarvogi. Meirihlutinn hundsaði tillöguna eins og aðrar góðar tillögur frá minnihlutanum. Eftir fyrirspurnir og eftirgangsmuni hefur einnig fengist staðfest að verklagsreglum hefur ekki verið fylgt þegar kemur að ákvarðanatöku um nýframkvæmdir. Þannig hafa framkvæmdir verið samþykktar án þess að nokkur grein hafi verið gerð fyrir rekstrarkostnaði (innri leigu) sem af þeim leiðir eða sá kostnaður samþykktur. Þannig hefur húsnæðiskostnaður aukist í blindni hjá borginni eftir að sjálfstæðismenn tóku við stjórn hennar, þannig er ekki hægt að reka sveitarfélag. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar