Logi: Sýndum mikið hjarta og börðumst eins og ljón Ómar Þorgeirsson skrifar 22. ágúst 2009 20:15 Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson átti flottan leik í 87-75 sigri Íslands gegn Hollandi í B-deild Evrópukeppninnar í Smáranum í dag. Logi skoraði 16 stig og barðist grimmilega líkt og aðrir leikmenn liðsins gegn líkamlega hávaxnara og sterkara liði Hollendinga. „Við gerðum bara nákvæmlega það sem við lögðum upp með og það var að vera gjörsamlega brjálaðir í vörninni. Þeir eru með mun hávaxnara lið og við vissum að við þyrftum að bæta það upp með grimmd og við sýndum mikið hjarta og börðumst eins og ljón. Við börðum hressilega á þeim og létum finna fyrir okkur gegn gríðarlega sterku liði sem á heima í A-deildinni og er með tvo NBA leikmenn innanborðs. Við sýndum að við getum unnið hvaða þjóð sem er þó svo að við séum lágvaxnir. Við nýtum þá bara aðra hæfileika í staðinn," segir Logi. „Þó svo að við höfum hitt vel, sérstaklega framan af leik, þá var það í raun varnarleikurinn sem skóp þennan sigur. Ég meina við náðum góðri forystu með því að halda svona sterkri þjóð í aðeins 31 stigi í fyrri hálfleik og þeir urðu rosalega pirraðir út af því. Við vissum að þeir kæmu með áhlaup í síðari hálfleiknum en við stóðum það af okkur og uppskárum eftir því. Við gáfum út að við ætluðum okkur að stefna á annað sætið og það stendur bara áfram. Við förum bara í þá leiki sem eftir eru til þess að vinna þá," segir Logi ákveðinn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira