Hafnir landsins innheimta ekki farþegaskatt fyrir ríkissjóð 19. nóvember 2009 15:31 „
Stjórn Hafnasambands Íslands mótmælir harðlega öllum hugmyndum um upptöku nýs skatts á ferðamenn á Íslandi og hækkun vitagjalds, en hvort tveggja mun leiða til aukinnar gjaldtöku af farþegum og útgerðum skemmtiferðaskipa sem leggja leið sína til landsins." Þetta segir í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi í Hafnasambandinu fyrr í mánuðinum. Jafnframt var það áréttað að ekki kæmi til greina að hafnirnar tækju að sér að innheimta nýja farþegaskatt fyrir ríkissjóð. Í ályktunni segir ennfremur að stjórn Hafnasambandsins skorar á ríkisstjórnina að endurskoða þessar fyrirætlanir, sem munu ef af verður skaða þá markaðssetningu sem hafnir og ferðaþjónustuaðilar hafa staðið fyrir á liðnum árum varðandi skemmtiferðaskipin og fækka verulega komum þessara skipa til landsins. Það mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar til hins verra fyrir fjárhag þeirra hafna, sem skemmtiferðaskipin hafa átt viðskipti við eða stefna að viðskiptum við. Í greinargerð með ályktuninni segir að nú sé að störfum nefnd fjármálaráðuneytisins sem skoðar valkosti um skattlagningu vegna komu ferðamanna til Íslands, þ.m.t. skatt á farþega skemmtiferðaskipa. Þá liggur fyrir tillaga um tvöföldun svonefnds vitagjalds, sem skilar ríkissjóði nú þegar 145 milljónum kr., en er áætlað að skili um 290 milljónum kr. á árinu 2010. Stjórn Hafnasambands Íslands hefur skilning á þörf ríkissjóðs til frekari tekjuöflunar, en varar við handahófskenndri skattlagningu af þessum toga. Á síðustu árum hafa hafnir og ferðaþjónustuaðilar unnið öflugt markaðsstarf við að fjölga komum skemmtiferðaskipa til Íslands og hefur farþegum með þessum skipum einnig fjölgað verulega. Ríkissjóður hefur notið góðs af þessari markaðssetningu án þess að leggja fram teljandi fjármuni. Stjórn Hafnasambands Íslands hvetur ráðherra ríkisstjórnarinnar að gæta hófs í nýrri skattlagningu af þessum toga og varar við afleiðingum óskynsamlegrar skattlagningar. Þá undrast stjórnin að á sama tíma og hafnir, sem flestar standa afar höllum fæti fjárhagslega, eru hvattar til að gæta hófs í breytingum á gjaldskrám, þá gengur ríkissjóður fram í veigamiklum hækkunum skatta. Stjórn Hafnasambands Íslands bendir á eftirfarandi í þessu efni: Ný skattlagning á farþega skemmtiferðaskipa heggur í heimildir hafna til gjaldtöku samkvæmt hafnalögum. Bent er á reynslu frá Alaska og Noregi þar sem vanhugsuð gjöld drógu úr fjölda ferðamanna. Af hálfu hafna kemur ekki til greina að hafnirnar annist innheimtu fyrir ríkissjóð á nýjum farþegaskatti. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að vitagjald standi undir rekstri Siglingastofnunar. Þar er nú gert ráð fyrir 10% niðurskurði og verulegum breytingum á starfsemi stofnunarinnar þannig að hækkun vitagjaldsins er augljóslega hugsuð sem nýr tekjustofn ríkissjóðs. Hækkun vitagjaldsins mun væntanlega nema hærri fjárhæð en heildarhækkun hafna á gjaldskrám sínum fyrir árið 2010. Hækkun vitagjaldsins og nýr farþegaskattur munu skaða þá markaðssetningu sem hafnir og ferðaþjónustuaðilar hafa staðið fyrir á liðnum árum varðandi skemmtiferðaskipin.
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira