Sektir á þjóðfundi 20. nóvember 2009 06:00 Á laugardaginn var veittist mér sú ánægja að taka þátt í að semja nýjan þúsund radda brag um bjarta framtíð lands og þjóðar. Á sögulegum og vel skipulögðum Þjóðfundi var lagt á ráðin um hvað þjóðin ætti að hafa að leiðarljósi til að létta þrautagönguna eftir Hrunið mikla og stefna að þegar komið væri út úr eyðimörkinni. Verður vonandi gagn að öllu því sem rætt var og skrifað á óteljandi litfagra miða í þétt setinni Laugardalshöll. Forsprakkar og allir sem lögðu hönd á plóginn eiga hrós skilið og þökk fyrir glæsilegt þing með þeim þverskurði þjóðarinnar sem þarna var saman kominn. Það var logn og blíða þegar þjóðfundarmenn streymdu út úr höllinni léttir í lund hundruðum saman eftir skemmtilegan dag. En samkvæmt frétt í Fréttablaðinu í dag hefur tíunda hverjum fundarmanni brugðið í brún er hann nálgaðist bíl sinn. Kveðja frá laganna vörðum var komin á framgluggann: sekt. Og minn bíll var horfinn! Hafði honum verið stolið eða hvað? Skal ekki fjölyrt hér um þennan lokahnykk á þjóðfundarþátttöku minni heldur kem ég hér með tillögu til íhugunar. Tekið skal fram að ég er alla manna argastur út í þá sem leggja bíl sínum út á gras eða fara um grasblett til að stytta sér leið ef önnur er til. En það er hætt við, á fjölmennum mannfundum, að fleiri fylgi á eftir út á blett eða tylli sér upp á gangstétt í röð fyrir aftan þá sem hafa byrjað. Af óviðráðanlegum orsökum var ég t.d. seint á ferð, kom að austan meðfram Húsdýragarðinum, bílar lagðir þá þegar tvist og bast á vegarkanta og uppi á grasblettum þegar nær dró Laugardalshöll, allfjarri henni þó, og bílastæðið við Skautahöllina fullt. Það er í rauninni ekki einleikið hve margir þjóðfundarmenn fengu þarna sektir. Það hljóta að hafa verið þarna mjög margir ef ekki flestir sem sækja ekki oft stórviðburði í höllinni. Og er því hvorki fullkunnugt um bílastæði annars staðar í Laugardal né rösklegri framgöngu lögreglunnar meðan á atburðum stendur. Hér er tillagan. Annars vegar að merkja ætti bannsvæðin mun rækilegar og víðar en gert er nú. Hins vegar að kalla ætti til „varalið“ til að stjórna aðvífandi umferð fyrir upphaf stórviðburða – og sérílagi mannfunda, svo sem landsfunda, þar sem ætla mætti að væntanlegir gestir væru ekki allir hagavanir. Bílastæðasjóður hefur þénað um daginn nokkur hundruð þúsund krónur. Svona pening mætti nota í fyrirbyggjandi aðgerðir. Höfundur er veðurfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 28.06.2025 Halldór Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson skrifar Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar