Vinir í raun? Kristján Sturluson skrifar 27. nóvember 2009 06:00 Nú þegar harðnað hefur á dalnum á Íslandi hefur skýrt komið í ljós hversu brýnt það er fyrir okkur að eiga vini í raun. Við ætlumst til að aðrar þjóðir sýni stöðu okkar skilning og komi okkur til aðstoðar. Á sama tíma og við höfum þessar væntingar til vina okkar má spyrja sig hvort við Íslendingar sjálfir séum vinir í raun. Framlög Íslands til þróunarsamvinnu munu minnka frá því í fyrra að raunvirði um 45% verði frumvarp til fjárlaga, sem nú er rætt á Alþingi, samþykkt. Ástandið hér á landi er vissulega mjög erfitt en það er staðreynd að það er mun erfiðara víða annars staðar. Svo dæmi sé tekið getur stuðningur í þróunarsamvinnu skilið á milli lífs og dauða í sumum löndum Afríku. Fólk í þessum löndum skilur mæta vel að ekki er sama stuðnings að vænta frá vinum þeirra á Íslandi og verið hefur. Það að stuðningurinn hverfi að stórum hluta á erfiðum tímum er hins vegar óskiljanlegt, eða eins og kollegi minn hjá Rauða kross félagi í sunnanverðri Afríku sagði: „Maður yfirgefur ekki vini sína á erfiðum tímum, þá fyrst reynir á að þeir standi með manni." Rauði kross Íslands skorar á Alþingi að við afgreiðslu fjárlaga gerum við Íslendingar sömu kröfur til okkar sjálfra og við gerum til vina okkar. Höfundur er framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Nú þegar harðnað hefur á dalnum á Íslandi hefur skýrt komið í ljós hversu brýnt það er fyrir okkur að eiga vini í raun. Við ætlumst til að aðrar þjóðir sýni stöðu okkar skilning og komi okkur til aðstoðar. Á sama tíma og við höfum þessar væntingar til vina okkar má spyrja sig hvort við Íslendingar sjálfir séum vinir í raun. Framlög Íslands til þróunarsamvinnu munu minnka frá því í fyrra að raunvirði um 45% verði frumvarp til fjárlaga, sem nú er rætt á Alþingi, samþykkt. Ástandið hér á landi er vissulega mjög erfitt en það er staðreynd að það er mun erfiðara víða annars staðar. Svo dæmi sé tekið getur stuðningur í þróunarsamvinnu skilið á milli lífs og dauða í sumum löndum Afríku. Fólk í þessum löndum skilur mæta vel að ekki er sama stuðnings að vænta frá vinum þeirra á Íslandi og verið hefur. Það að stuðningurinn hverfi að stórum hluta á erfiðum tímum er hins vegar óskiljanlegt, eða eins og kollegi minn hjá Rauða kross félagi í sunnanverðri Afríku sagði: „Maður yfirgefur ekki vini sína á erfiðum tímum, þá fyrst reynir á að þeir standi með manni." Rauði kross Íslands skorar á Alþingi að við afgreiðslu fjárlaga gerum við Íslendingar sömu kröfur til okkar sjálfra og við gerum til vina okkar. Höfundur er framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun