Íslenski boltinn

Umfjöllun: Mögnuð endurkoma KR-inga

Elvar Geir Magnússon skrifar
Prince Rajcomar kom inn sem varamaður í hálfleik.
Prince Rajcomar kom inn sem varamaður í hálfleik. Mynd/Daníel

KR-ingar unnu ótrúlegan sigur, 3-2, í Pepsi-deild karla í kvöld eftir að hafa lent 0-2 undir. Alfreð Finnbogason og Olgeir Sigurgeirsson komu Blikunum yfir með tveimur mörkum snemma leiks og staðan var 0-2 fyrir gestinum í hálfleik.

KR-ingar gáfust hins vegar ekki upp og skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleik. Óskar Örn Hauksson skoraði snemma í seinni hálfleik en varnarmennirnir Grétar S. Sigurðsson og Mark Rutgers tryggðu sigurinn með tveimur mörkum í blálokin.

Leikurinn í kvöld var hreint frábær skemmtun og byrjuðu lætin snemma leiks þegar Guðmundur Benediktsson átti skalla í innanverða stöngina. En Blikar tóku hinsvegar forystuna eftir gott spil. Kristinn Steindórsson átti hnitmiðaða sendingu á Alfreð sem lék á Stefán Loga Magnússon og renndi svo knettinum í netið.

Ekki löngu síðar bætti Olgeir við marki eftir glæsilegan samleik við Alfreð. Olgeir rak naglann laglega á sóknina með laglegu skoti. Stuðningsmenn KR voru hreint orðlausir en viðureign þessara liða í fyrra var rifjuð upp þar sem Blikar náðu einnig tveggja marka forystu snemma leiks.

Logi Ólafsson gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og breytti leikskipulaginu enda voru hans menn nær sundurspilaðir á löngum köflum. Þessar breytingar virkuðu því Óskar Örn skoraði snemma í seinni hálfleik. Jordao Diogo á þó heiðurinn af því marki enda átti hann frábæran undirbúning.

Ingvar Kale átti góðan leik í marki Breiðabliks í kvöld og varði hann vítaspyrnu frá Bjarna Guðjónssyni. Þrátt fyrir það klúður lögðu KR-ingar ekki árar í bát. Á 86. mínútu höfðu þeir heppnina með sér þegar Grétar Sigfinnur átti hörkuskalla sem endaði í markinu.

KR-ingar voru alls ekki saddir og héldu áfram að sækja. Baldur Sigurðsson átti skalla í slá rétt áður en venjulegum leiktíma lauk. Í uppbótartímanum kom síðan sigurmarkið en það gerði Rutgers með skalla eftir hornspyrnu Bjarna Guðjónssonar.

KR-ingar fögnuðu innilega í leikslok enda gríðarlega mikilvægur sigur fyrir þá ef þeir ætla að halda í við FH-inga. Blikar voru hinsvegar hundsvekktir.

KR - Breiðablik 3-2

0-1 Alfreð Finnbogason (12.)

0-2 Olgeir Sigurgeirsson (15.)

1-2 Óskar Örn Hauksson (48.)

2-2 Grétar S. Sigurðarson (86.)

3-2 Mark Rutgers (90.)

KR-völlur. Áhorfendur: 1969

Dómari: Eyjólfur Magnús Kristinsson 5.

Skot (á mark): 15-7 (12-4)

Varin skot: Stefán 2 – Ingvar 8

Horn: 7-4

Aukaspyrnur fengnar: 15-13

Rangstöður: 2-1

KR (4-4-2)

Stefán Logi Magnússon 5

Skúli Jón Friðgeirsson 4

Grétar Sigfinnur Sigurðsson 7

Mark Rutgers 6

Jordao Diogo 6

Óskar Örn Hauksson 7

(76. Atli Jóhannsson x)

Jónas Guðni Sævarsson 7

Bjarni Guðjónsson 7

Baldur Sigurðsson 6

Guðmundur Benediktsson 5

(46. Prince Rajcomar 6)

Gunnar Örn Jónsson 5

(46. Björgólfur Takefusa 7)

Breiðablik (4-4-2)

Ingvar Þór Kale 7

Arnór Sveinn Aðalsteinsson 7

Guðmann Þórisson 6

(44. Elfar Freyr Helgason 4)

Kári Ársælsson 8 – Maður leiksins

Kristinn Jónsson 5

Finnur Orri Margeirsson 6

Guðmundur Kristjánsson 6

(72. Haukur Baldvinsson x)

Olgeir Sigurgeirsson 6

Arnar Grétarsson 7

(90. Árni Kristinn Gunnarsson x)

Kristinn Steindórsson 6

Alfreð Finnbogason 7

Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var með beina lýsingu frá leik KR og Breiðabliks í 9. umferð Pepsi-deildar karla.

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: KR - Breiðablik.

Þá er einnig hægt að nálgast Boltavaktina í Vodafone Live! farsímaþjónustunni.


Tengdar fréttir

Jónas Guðni: Frábær karakter

„Þetta var hörkugóður leikur og skemmtilegur áhorfs. Áhorfendur létu vel í sér heyra og það var frábær stemning, bæði út á vellinum og uppi í stúku," sagði Jónas Guðni Sævarsson, fyrirliði KR, eftir sigurinn dramatíska á Breiðabliki í kvöld.

Ólafur: Fáránlegt að tapa þessum leik

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum þungur á brún eftir leikinn í kvöld. Eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik þá fékk liðið á sig þrjú mörk í þeim síðari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×