Tökum tillit til barna í umferðinni í vetur 2. september 2009 06:30 Nú eru skólar byrjaðir og nokkur þúsund börn eru að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Þegar við sjáum þessi börn og auðvitað mörg önnur á leiðinni í skólann hugsum við hlýlega til þeirra og vonum að hvert og eitt þeirra eigi ánægjulegan skóladag og góðan skólavetur. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur fullorðna fólkinu að búa börnum okkar góða skóla og umhverfi sem býður upp á sem öruggastar leiðir. Allir foreldrar barna ættu að vita hvaða leið barnið gengur í skólann og að sú leið sé sú öruggasta. Þegar ég var barn var það almenn regla að börn færu ein í skólann og gengju jafnvel langan veg. Bílaeign og umferð var þá miklu mun minni en nú er. Nú hefur þetta breyst og margir keyra börn sín í skólann en engu að síður eru þau í umferðinni. Það er mikilvægt að öryggisbeltin séu spennt og að bílstjórar barnanna sjái svo um að þau búi við sem mest öryggi á allan hátt með góðum akstri og með því að hafa einbeitinguna í lagi. Þessi tími haustsins getur verið mjög varasamur því börn eiga það til að gleyma sér í morgundimmunni og skammdeginu eftir sumar mikillar birtu. Því er okkur nauðsynlegt að vera árvökul og viðbúin. Slysin verða oftast þegar eitthvað óvænt hendir og fólk hefur alls ekki búist við þeim aðstæðum er komu upp. Eitt andartak getur orðið til þess að allt breytist í lífi okkar og dagur sem átti að verða ósköp venjulegur verður örlagadagur sem varpar skugga og sorg á tilveru okkar í langan tíma á eftir. Ég vil hvetja til þess að við ökum varlega, af virðingu og þökk við lífið og af virðingu og tillitssemi við öll börn þessa lands. Í dimmunni er oft erfitt að greina dökkklædda, en endurskinsmerki eru mjög mikilvæg og hafa þau sannað gildi sitt og örugglega orðið til þess að koma í veg fyrir mörg slys. Öll börn sem eru á leiðinni í skólann og reyndar hvar sem er ættu að bera endurskinsmerki. Þetta á auðvitað við um alla gangandi vegfarendur. Gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að öll skólabörn séu örugg í umferðinni og komist heilu og höldnu í skólann sinn í vetur. Höfundur er vímuvarnaprestur og formaður umferðarráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar