Ríkissjóður sparar 700 milljónir í vaxtagreiðslur 25. maí 2009 11:59
Ef tekið er mið af ávöxtunarkröfu í útboði Seðlabankans á ríkisbréfum fyrir helgina má segja að ríkissjóður þurfi að greiða nær 700 milljónir kr. minna í árlegar vaxtagreiðslur næstu árin af skuldabréfunum sem seld voru á föstudag en raunin hefði orðið ef krafan hefði verið óbreytt frá aprílmánuði. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að óhætt sé að segja að viðtökur fjárfesta við útboði Seðlabankans á ríkisbréfum síðastliðinn föstudag hafi verið góðar. Óskað var eftir tilboðun í tvo flokka, RIKB 10 1210 og RIKB 13 0517 og bárust tilboð að fjárhæð 34 milljarðar kr. að nafnvirði, en tilboðum fyrir u.þ.b. 24,5 milljarða kr. var tekið. Í fyrrnefnda flokkinn var tilboðum tekið fyrir 14,2 milljarða kr. að nafnvirði á 6,63% ávöxtunarkröfu en í þann síðarnefnda var tekið tilboðum fyrir 10,3 milljarða kr. að nafnvirði á 6,92% ávöxtunarkröfu. Ekki liggur fyrir hvernig kaupendahópurinn skiptist en leiða má að því líkum að erlendir fjárfestar hafi verið talsvert atkvæðamiklir í styttri flokknum auk þess sem innlendir verðbréfasjóðir og viðskiptavinir eignastýringar fjármálafyrirtækja hafa trúlega verið fyrirferðamiklir í kaupendahópnum. Ef niðurstaða útboðsins nú er borin saman við síðasta útboð sem haldið var fyrir rúmum mánuði síðan kemur í ljós að ávöxtunarkrafa í samþykktum tilboðum var 9,98% fyrir RIKB 10 1210 og 9,03% í tilfelli RIKB 13 0517. Ávöxtunarkrafa á markaði hefur lækkað mikið undanfarinn mánuð, sér í lagi í kjölfar allmyndarlegrar vaxtalækkunar Seðlabanka í maíbyrjun og ádráttar um að umtalsverð vaxtalækkun gæti verið í pípunum í júní. Fjármögnunarkostnaður ríkissjóðs lækkaði því um þriðjung á milli mánaða í tilfelli fyrrnefndu bréfanna og um tæpan fjórðung á þeim síðarnefndu. Þannig má segja að ríkissjóður þurfi að greiða nær 700 milljónum kr. minna í árlegar vaxtagreiðslur næstu árin af skuldabréfunum sem seld voru á föstudag en raunin hefði orðið ef krafan hefði verið óbreytt frá aprílmánuði.Munar um minna í þeirri þröngu stöðu sem ríkisfjármálin eru nú í. Þar sem verulegur hluti þessara vaxtagreiðslna rennur til útlendinga hefur þessi þróun einnig jákvæð áhrif á flæði á gjaldeyrismarkaði er frá líður.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira