Serbar skelltu Spánverjum í fyrsta leik - héldu þeim í 57 stigum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2009 09:00 Það gekk ekkert upp hjá Pau Gasol í leiknum. Mynd/AFP
Serbía vann óvæntan 66-57 sigur á Spánverjum í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í Póllandi í gær. Spánverjar voru fyrir mótið taldir vera með sigurstranglegasta liðið á sama tíma og Serbar mæta til leiks með ungt lið og engar NBA-stjörnur innanborðs. Serbar unnu síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks 14-4 og voru 38-23 yfir í hálfleik. Munurinn fór síðan aldrei niður fyrir átta stig í seinni hálfleik. Nenad Krstic (26 ára miðherji, Oklahoma City Thunder) var með 17 stig hjá Serbum og Novica Velickovic (23 ára framherji, Real Madrid) skoraði 12 stig og tók 8 fráköst. Þá var Milenko Tepic (22 ára framherji, Panathinaikos) með 10 stig. „Við áttum þennan sigur fyllilega skilinn og við unnum þennan leik á stórkostlegum varnarleik," sagði Duzan Ivkovic, þjálfari Serba eftir leikinn. Pau Gasol hjá Los Angeles Lakers fann sig ekki hjá Spánverjunum og skoraði aðeins 9 stig. Gasol klikkaði meðal annars á 7 af 8 vítum sínum í leiknum. Juan Carlos Navarro var stigahæstur með 14 stig. „Þeir spiluðu frábærlega og þá sérstaklega í vörninni. Sóknin okkar brást bæði vegna þess að þeir spiluðu góðu vörn en eins vegna þess að mínir menn voru að klikka á galopnum skotum," sagði Sergio Scariolo þjálfari Spánverja en spænska liðið hitti aðeins úr 2 af 19 þriggja stiga skotum sínum. Slóvenía vann 72-59 sigur á Bretum í hinum leik riðilsins þar sem Erazem Lorbek, fyrrum félagi Jóns Arnórs Stefánssonar hjá Benetton Treviso, var stigahæstur með 19 stig.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira