Við getum aukið hlut kvenna Kristján Möller skrifar 7. nóvember 2009 06:00 Þau ánægjulegu tíðindi bárust nú nýlega að Ísland er komið í fyrsta sæti þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Þetta er niðurstaða í skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Econonic Forum) sem framkvæmir slíkar mælingar árlega meðal 134 landa, en vinaþjóðir okkar Noregur, Finnland og Svíþjóð verma sætin á eftir okkur. Tvennt tel ég að hafi skipt máli hvað varðar þessi tímamót en það er annars vegar sú staðreynd að þingkonum fjölgaði úr 33% í 43% við síðustu Alþingiskosningar, þökk sé marvissum jafnréttisáherslum sjónarmálaflokkanna, ekki síst þeirra sem nú sitja í ríkisstjón. Hins vegar sú staðreynd að jafnræði kynjanna ríkir nú í ríkisstjórn Íslands í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar. En þessi árangur kemur ekki af sjálfu sér heldur er hann endurspeglun á þeim pólitísku áherslum sem ríkja hér á landi. Með þeim er lögð áhersla á þá staðreynd að mikil verðmæti og ávinningur felast í jafnri stöðu kvenna og karla, að jöfn tækifæri í samfélaginu og þátttaka allra sé verðmæti í sjálfu sér. Ríkisstjórnin er einhuga um þessi markmið og kemur sú áhersla glöggt fram í samstarfsyfirlýsingu hennar. Ég hef sem sveitarstjórnarráðherra fylgt þessari stefnumörkun fast eftir og í vor skipaði ég starfshóp sem fékk það hlutverk að móta tillögur um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynjanna í sveitarstjórnum. Því miður er það svo, þrátt fyrir góðan jafnréttisáragnur á ýmsum sviðum, að hlutfall kvenna í sveitarstjórnum er aðeins 36% sveitarstjórnarfulltrúa meðan hlutur karla er 64%. Þá eru karlar í meirihluta í 66 sveitarfélögum af 77 og í fimm sveitarfélögum voru einungis karlar fulltrúar í sveitarstjórn. Þetta er alls ekki góð staða, við getum sem þjóð ekki sætt okkur við það að þátttaka kvenna sé ekki betri en þetta og á því þarf að ráða bót. Okkur gefst tækifæri til þess eftir 6 mánuði, en þá verða haldnar almennar sveitarstjórnarkosningar. Margar áhugaverðar tillögur er að finna í greinargerð starfshópsins, sem var skipaður fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi auk embættismanna. Meðal tillagna hópsins eru eftirfarandi: • Að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skipuleggi kynningarstarf og hvatningarátak fyrir því að konur til jafns við karla taki þátt í störfum sveitarstjórna. • Að ráðuneytið boði til samráðs með forystufólki úr stjórnmálaflokkunum til að hvetja til jafnræðis meðal kynjanna í efstu sætum framboðslista • Haldin verði námskeið á vegum ráðuneytisins fyrir konur um þátttöku í sveitarstjórnarstarfi. • Að ráðuneytið kanni stafsumhverfi og starfskjör kjörinna fulltrúa og meti með hliðsjón af jafnréttissjónarmiðum. Þá bendir starfhópurinn á þann möguleika að ekki verði heimilt að setja fram framboðslista nema jafnt hlutfall sé milli kynja. Þetta eru allt áhugaverðar hugmyndir og hef ég þegar ákveðið að hefja í samstarfi við önnur ráðuneyti, Jafnréttisstofu og Samband íslenskra sveitarfélaga vinnu við að hrinda þessum tillögum í framkvæmd eða skapa vettvang fyrir frekari umræðu. Mikilvægt er að allir stjórnmálaflokkar og pólitísk samtök komi að þessu mikilvæga verkefni því reynslan sýnir að það eru fyrst og fremst þeir, eða öllu heldur þær leikreglur sem unnið er eftir innan þeirra, sem hafa úrslitaþýðingu á það hvort okkur tekst að ná árangri á þessu sviði eða ekki. Ég hef þegar óskað eftir fundi með formönnum og framkvæmdastjórum stjórnmálaflokkanna um þessi málefni og mun þar kalla eftir samstöðu um þær aðgerðir sem við teljum nauðsynlegar til að ná árangri á sviði jafnréttismála við næstu sveitarstjórnarkosningar. Það mun, ásamt öðrum góðum jafnréttisáherslum, tryggja okkur fyrsta sætið á jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins næstu árin. Ég vil að lokum lýsa mig sammála starfshópnum þegar hann segir, að mikilvæg forsenda lýðræðis sé sú að karlar og konur taki jafnan þátt í mótun samfélagsins. Ákvarðanir sveitarstjórna hafa mikil áhrif og þær móta allt okkar daglegt líf. Færa má rök fyrir því að það halli á lýðræðið ef við gætum þess ekki að hafa jafnt hlutfall karla og kvenna í sveitarstjórnum. Við höfum sameiginlega verk að vinna á þessum vettvangi og náum meiri árangri ef við leggjum saman kraftana. Við höfum öll hugmyndir og þess vegna getum við aukið hlut kvenna í sveitarstjórnum á Íslandi. Höfundur er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar