Handbolti

Stórsigur Vals á HK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eva Barna skoraði tíu mörk fyrir Val í dag.
Eva Barna skoraði tíu mörk fyrir Val í dag. Mynd/Arnþór

Þriðja og síðasta leik dagsins í N1-deild kvenna lauk með þrettán marka stórsigri Vals á HK eftir að munurinn var ekki nema þrjú mörk í hálfleik, 17-14, Val í vil.

Eva Barna skoraði níu mörk fyrir Val og Hildigunnur Einarsdóttir átta. Þrír leikmenn úr röðum Vals skoruðu fjögur mörk.

Hjá HK var Arna Sif Pálsdóttir markahæst með níu mörk en þær Pavla Plaminkova, Elísa Ósk Viðarsdóttir og Brynja Magnúsdóttir skoruðu fjögur mörk hver.

Valur er í þriðja sæti með 20 stig en HK í því sjötta með níu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×