Af heimilisbókhaldi Þorsteinn Hilmarsson skrifar 21. ágúst 2009 04:00 Ólafur S. Andrésson setti fram heimilisbókhald Kárahnjúkavirkjunar í Fréttablaðinu nýlega. Þetta gerir hann ugglaust af góðum vilja og bestu getu en þó gætir misskilnings og ónákvæmni í meðferð forsendna sem veldur því að útkoman stemmir engan veginn við veruleikann. Hann gefur sér forsendur að sögn byggðar á ársskýrslu Landsvirkjunar 2008 en árskýrsla fyrirtækis getur ekki verið forsenda fyrir arðsemisútreikningi á einstökum rekstrareiningum. Það gildir um heimilisbókhald eins og annað bókhald að forsendur þurfa að vera réttar til þess að útkoman verði marktæk. Niðurstaða Ólafs um að árstekjur af orkusölu frá Kárahnjúkavirkjun þurfi að vera a.m.k. 190 milljónir USD skýtur langt yfir markið. Rangar forsendurAf villum í forsendum í bókhaldi Ólafs má nefna að hann telur rekstrarkostnað virkjunarinnar nema um 2% af stofnkostnaði árlega, það er í hrópandi mótsögn við ársskýrsluna. Rekstrarkostnaðurinn er 0,5% eða um 780 milljónir króna á ári skv. skýrslu Landsvirkjunar um arðsemi virkjunarinnar sem nálgast má á netinu. Meðalafskriftatími mannvirkjanna er einnig lengri en Ólafur gerir ráð fyrir þar sem yfirgnæfandi hlutfall stofnkostnaðar er vegna stíflna og jarðganga sem afskrifast á 60 árum. Þá reiknar Ólafur stofnkostnaðinn sem 2,4 milljarða USD en rétt er að hann er tæpir 2,1 milljarður. Stærsta villa Ólafs í stofnkostnaðarútreikningunum virðist mér vera að hann bætir vöxtum á framkvæmdatíma ofan á tölur sem þegar innihalda þá vexti.Vangaveltur Ólafs um vaxtagjöld og tekjur af Kárahnjúkavirkjun eru óljósar. Hann virðist skoða punktstöðu frekar en lengra tímabil. Mat Ólafs á tekjum af orkusölu eru allt að 40% lægri en útreikningar hagfræðistofnunar HÍ í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir iðnaðarráðuneytið. Traustur reksturAf ársreikningum Landsvirkjunar má lesa að um langan tíma hefur fyrirtækið skilað verulegu fé frá rekstri ár hvert til þess að greiða niður skuldir eða fjárfesta í nýjum mannvirkjum. Þetta eru upphæðir sem taldar eru í tugmilljörðum króna. Eigið fé Landsvirkjunar hefur vaxið verulega á undanförnum árum, bæði vegna þess að reksturinn stendur undir sér og vegna þess að ný alþjóðleg reikningsskil sem lögleidd voru hérlendis draga fram betur en áður þau verðmæti sem fólgin eru í fyrirtækinu. Eiginfjárhlutfall nú er álíka og þegar fjárfestingar hófust í Kárahnjúkavirkjun.Rekstur Kárahnjúkavirkjunar hefur skilað verulegu fé í sjóði fyrirtækisins undanfarin misseri. Ekkert bendir til annars en að bygging Kárahnjúkavirkjunar og orkusalan til Fjarðaáls standist þær væntingar um arðsemi sem lagt var upp með.Stefán Svavarsson birti grein í Morgunblaðinu 16. mars sl. Hann er einn virtasti fræðimaður á sviði endurskoðunar í landinu og ekki ætti heimilisbókhaldið að vefjast fyrir honum. Hann fjallar þar um ársreikninga Landsvirkjunar 2008 og undirstrikar að staða fyrirtækisins sé traust þrátt fyrir rekstrartap. Hann bendir á eftirfarandi: „Sé miðað við skuldir í árslok 2008 má reikna út, að reksturinn gæti greitt upp allar skuldir á 16 árum eða svo að því gefnu að fjárfesting verði engin og rekstur gangi eins fyrir sig á næstu árum og hann gerði á árinu 2008. Varla bendir það til að fjárhagur félagsins standi á brauðfótum, eins og sumir hafa þó haldið fram, en er auðvitað fráleitt mat á fjárhag þess." 7% umfram áætlun.Ólafur telur að virkjunin hafi farið 50% fram úr kostnaðaráætlun á byggingartíma en þá kýs hann að flytja stofnkostnaðinn yfir í dollara. Eins og komið hefur fram var verkefnið unnið á grundvelli áætlana í krónum og gengisbreytingar gagnvart dollar eru ekki mælikvarði á hversu vel tókst að halda áætlun. Hið rétta er eins og fram hefur komið m.a. í skýrslu til Alþingis að kostnaður fór 7% fram úr áætlun. Raunar framleiðir virkjunin um 7% meira rafmagn en hönnunin gerði ráð fyrir og Fjarðaál kaupir um 7% umfram þá orku sem Ólafur reiknar með. Skattlagning óþörfHelsta lausn Ólafs á þeim halla sem hann ranglega sér í heimilisbókhaldi Kárahnjúkavirkjunar er býsna skondin, en það er að leggja skatt á selda raforku til að endurreisa efnahag þjóðarinnar. Ekki verður fjallað um þá skoðun hér en áréttað að Landsvirkjun stendur fjárhagslega styrkum fótum og því er engin ástæða til að hrella orkukaupendur með nýjum álögum.Höfundur er upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Sjá meira
Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun
Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar
Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun
Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun