Svekkjandi jafntefli gegn Norðmönnum 14. júní 2009 15:45 Guðjón Valur Sigurðsson fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Vísir var með beina lýsingu frá leik Íslands og Noregs í undankeppni EM 2010 en úrslitakeppnin fer fram í Austurríki á næsta ári. Nánari umfjöllun um leikinn birtist á Vísi síðar í kvöld. 17.40: Fyrir leik hefði jafntefli ekki verið slæm úrslit en eins og þetta spilaðist var gríðarlega sárt fyrir íslenska liðið að missa þetta niður í jafntefli. Liðin eru því áfram efst og jöfn í riðlunum en leikurinn gegn Makedóníu á miðvikudag verður upp á líf og dauða. Farseðillinn til Austurríkis þarf því að bíða um stund. 17.37: 34-34 - Norðmenn jafna þegar fimm sekúndur eru eftir. Íslendingar ná ekki að koma skoti á markið. Gríðarleg vonbrigði fyrir Ísland sem leiddi allan leikinn. 17.36: 34-33 - Sigurbergur með skot yfir. Ein mín eftir og Norðmenn eru með boltann.17.34: 34-33 - Mamelund minnkar muninn. 1 mín og 20 sek eftir.17.34: 34-32 - Sigurbergur með risamark fyrir Ísland.17.33: 33-32 - Alexander skorar og Norðmenn ná svo ekki að jafna. Tvær og hálf mínúta eftir þegar Ísland er í sókn.17.32: 32-32 - Norðmenn jafna í fyrsta sinn síðan í upphafi leiks.17.28: 32-31 - Íslendingar hafa í tvígang kastað frá sér fimm marka forystu. Nú eru fimm mínútur eftir og spennan er gríðarleg.17.25: 32-29 - Alexander með sitt níunda mark í leiknum en Erlend Mamelund svarar með sínu ellefta marki. Þetta er langt frá því að vera búið.17.24: 31-27 - Sigurbergur skorar sitt sjötta mark í leiknum. Þvílíkur leikur hjá stráknum.17.22: 30-25 - Guðjón Valur skorar með glæsilegu skoti úr horninu.17.20: 29-25 - Góður leikkafli hjá Íslandi og Þórir skorar þriðja mark Íslands í röð. Norðmenn taka leikhlé þegar ellefu mínútur lifa leiks.17.18: 28-25 - Frábær varnarleikur hjá Íslandi skóp hraðaupphlaup sem Alexander skoraði úr. Hans áttunda mark í leiknum.17.17: 27-25 - Guðjón Valur skoraði af vítalínunni eftir að Róbert hafði fiskað vítið.17.15: 26-25 - Þetta er fljótt að breytast. Nú er stundarfjórðungur eftir og Ísland er búið að leiða leikinn frá fyrstu mínútu.17.13: 26-23 - Heiðmar er mættur aftur og er búinn að skora tvö mörk í röð fyrir Ísland. Hann er kominn með sex mörk í leiknum.17.12: 24-22 - Heiðar varði á mikilvægum tímapunkti. Það eru enn átján mínútur eftir af leiknum og íslenska liðið verður nú að taka sér tak.17.10: 24-21 - Alexander skoraði sitt sjöunda mark fyrir Ísland. Norðmenn eru byrjaðir að ógna okkur verulega og eiga ekki í miklum erfiðleikum með að skora núna. Vörnin hjá íslenska liðinu er ekki jafn beitt og í fyrri hálfleik og markvarslan er dottin niður.17.08: 23-18 - Snorri Steinn skorarar og svo Alexander.17.06: 21-18 - Snorri Steinn stígur upp og skorar mikilvægt mark. Hreiðar er kominn í markið.17.05: 20-18 - Norðmenn minnka muninn, manni færri.17.02: 20-16 - Sjálfstraustið skín af Sigurbergi og hann skorar sitt fimmta mark fyrir Ísland. Norðmenn eru þó ekki langt undan.17.00: Sigfús Sigurðsson sagði í viðtali við Rúv fyrir leik að Norðmenn væru oft góðir í æfingarleikjunum en gætu oft ekki neitt í stóru leikjunum. Við skulum vona að línumaðurinn stóri hafi rétt fyrir sér.16.59: 19-15 - Þórir skoraði fyrir Ísland.16.57: 18-14 - Sigurbergur skorar fyrsta mark Íslands í síðari hálfleik. Hans fjórða mark í leiknum.16.56: Seinni hálfleikur hafinn. Snorri Steinn meiddist eitthvað í fyrri hálfleik en ekki er víst hve alvarlegt það sé og hvort hann geti haldið áfram.16.47: Aðstoðarþjálfarinn Óskar Bjarni kvaðst sáttur með leik íslenska liðsins í viðtali við Rúv en ítrekaði að enn væru 30 mínútur eftir. Hann ætlaði jafnframt að hamra á því við íslensku leikmennina að pirra sig ekki um of á dómurum leiksins sem höfðu að hans mati dæmt meira með Norðmönnum. Íslendingar eru búnir að fá að fjúka nokkrum sinnum útaf í tvær mínútur, stundum fyrir litlar sakir.16.46: Heiðmar og Alexander hafa verið öflugir fyrir Ísland og gaman að sjá hvað margir eru að stíga fram og taka ábyrgð. Björgvin Páll er búinn að vera öflugur í markinu en íslensku varnarmennirnir hafa lent í mestum vandræðum með línumanninn sterka Frank Löke.16.45: 17-13 -Hálfleikur. Alexander skoraði síðasta mark Íslands í hálfleiknum. Hans fimmta mark í leiknum.16.40: 16-11 - Guðjón Valur skorar tvö mörk í röð fyrir Ísland. Þvílík stemning í íslenska liðinu. Þeir eru að fara þetta á stemningunni og baráttunni. Norðmenn eru ráðalausir.16.39: 14-10 - Járnkarlinn Alexander með sitt fjórða mark. Norsku varnarmennirnir ráða ekkert við hann.16.37: 13-9 - Sigurbergur skorar. Það gengur allt upp hjá Íslandi í augnablikinu.16.36: 12-9 - Guðjón Valur skorar úr víti sem Róbert fiskaði.16.34: 11-8 - Alexander skorar af gríðarlegu harðfylgi og norskur varnarmaður fer út af í tvær mínútur. Dæmigert mark fyrir Alexander.16.32: 10-7 - Snorri Steinn skoraði fyrir Ísland. Fyrsta skiptið sem Ísland nær þriggja marka forskoti í leiknum. Björgvin Páll er kominn með ellefu skot varin.16.30: 9-7 - Sigurbergur skorar sitt annað mark fyrir Ísland. Frábært að sjá hvað hann og Heiðmar eru búnir að koma sterkir inn í íslenska liðið.16.29: 8-7 - Alexander skoraði fyrir Ísland. Íslenska vörnin er aðeins byrjuð að gefa eftir.16.23: 7-5 - Heiðmar skorar fyrir Ísland. Hann ætlar greinilega að sýna landsliðsþjálfaranum hvað í sér býr. Kominn með fjögur mörk.16.21: 5-3 - Þórir skorar úr hraðaupphlaupi.16.19: 4-2 - Heiðmar heitur. Skorar annað mark sitt í leiknum með góðu skoti.16.18: 3-2 - Norðmenn skora sitt annað mark í leiknum eftir tæpar tólf mínútur.16.16: 3-1 - Heiðmar skoraði gott mark eftir að Sigurbergur hafði opnað vel fyrir hann.16.13: 2-1 - Markverðirnir komnir í gang. Steinar Ege er komin með fjögur skot varin og Björgvin Páll tvö. Íslendingar eru búnir að fá tvisvar sinnum tveggja mínútna brottvísun en vörnin er þétt og góð.16.07: 2-1 - Sigurbergur skoraði annað mark Íslands en Norðmenn svöruðu að bragði.16.05: Guðjón Valur og Þórir eru í hornunum, Sigurbergur og Alexander í skyttunum, Ragnar er leikstjórnandi, Róbert á línunni og Björgvin Páll í markinu. Sverre og Ingimundur koma svo inn í vörnina.16.04: 1-0 - Alexander Peterson skorar fyrsta markið.16.03: Leikur er hafinn - Íslendingar byrja með boltann.16.00: Lið Íslands er þannig skipað:Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson Hreiðar Levý GuðmundssonAðrir leikmenn: Vignir Svavarsson Guðjón Valur Sigurðsson Snorri Steinn Guðjónsson Heiðmar Felixsson Alexander Peterson Sverre Jakobsson Róbert Gunnarsson Ingimundur Ingimundarson Ragnar Óskarsson Þórir Ólafsson Sigurbergur Sveinsson Andri Stefan Guðrúnarson15.50: Snorri Steinn Guðjónsson er á skýrslu hjá Íslendingum í dag en ekki liggur ljóst fyrir hvað Guðmundur landsliðsþjálfari mun þora að nota hann mikið. Snorri er nýkominn úr meiðslum og annar mikilvægur leikur gegn Makedóníu á miðvikudag. Aron Pálmarsson er ekki með Íslandi í dag vegna meiðsla.15.45: Velkomin til leiks. Vísir er með beina lýsingu frá landsleik Íslands og Noregs í undankeppni EM 2010. Sigur í dag tryggir Íslandi þátttökurétt á EM í Austurríki í næsta ári.
Handbolti Mest lesið Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Handbolti Bubbi segir Eriku Nótt oft hafa verið betri: „Veit ekki hvað var að plaga hana“ Sport Heitir Valsmenn fara á toppinn með sigri Íslenski boltinn Íslandsmeistarinn með Audda og Steinda: „Hver er sá besti? Það er Elmar“ Fótbolti Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Enski boltinn Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Enski boltinn Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Körfubolti Pedersen í tvö hundruð leikja klúbbinn í kvöld: „Skiptir mig miklu máli“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sjóðheitir Valsmenn og Opna bandaríska Sport Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Enski boltinn Fleiri fréttir Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Rut bætist í stóran hóp sem kvatt hefur landsliðið „Einvígi sem hefur verið magnað að taka þátt í“ Viðar Símonarson látinn Tók við verðlaunum merktur Aroni sem var veikur heima Aron og Bjarki ungverskir meistarar á kostnað Janusar Aron og Bjarki báðir út úr hóp í úrslitaleiknum Íslendingaliðið kláraði sitt en Füchse Berlin er samt meistari í fyrsta sinn Orri og félagar bikarmeistarar Arnór Atla valinn þjálfari ársins Strákarnir hans Arnórs fara í oddaleik um bronsið KA ræður manninn sem gerði KA/Þór að Íslandsmeisturum Silfrið niðurstaðan fyrir Hannes og strákana hans Óðinn með næstflottasta markið í Evrópudeildinni Elín Klara og Reynir Þór valin best Guðjóni Val tókst ekki að hjálpa löndum sínum Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Gísli Þorgeir sleppur við aðgerð Dagur Árni fetar í fótspor pabba síns Lýst sem ungum Elvari: Reynir til eins besta liðs Þýskalands Gerir ekki ráð fyrir miklum breytingum á leikmannahópnum Hlaðvarpsstjörnu dreymir um að spila handbolta á Ólympíuleikunum 2028 Viktor Gísli pólskur meistari í kvöld Magdeburg upp í toppsætið en Melsungen missteig sig Sjá meira