Ávextir fjölmenningarsamfélagsins 8. október 2009 06:00 Fólksflutningar hafa verið hluti af mannkynssögunni frá upphafi til okkar daga. En samfara aukinni hnattvæðingu og vaxandi samskiptum ríkja á milli hafa fólksflutningar og málefni innflytjenda orðið flóknari. Tækninýjungar á sviði upplýsingaflutnings og samgangna ýta svo enn frekar undir þessa þróun. Við vitum miklu meira um það sem er að gerast í heiminum - og með þessari nýju vitneskju skapast ný sýn og ný ábyrgð. Við getum ekki snúið okkur undan og látið eins og annað fólk og afdrif þess í heiminum komi okkur ekki við. Öll sækjumst við í grundvallaratriðum eftir sömu lífsgæðum, hvar í veröldinni sem við fæðumst. Nú á tímum er það algengt viðhorf að fólk eigi að hafa tækifæri til þess að setjast að þar sem afkomu þess er borgið - þar sem draumurinn um innihaldsríkt og farsælt líf getur mögulega ræst. Að minnsta kosti með ákveðnum skilyrðum og innan skilgreindra marka. Undanfarna áratugi hafa fjölmenningarsamfélög nútímans verið að þróast í Evrópu, og víðar; sambýli fólks af ólíkum uppruna með ólík sjónarhorn á lífið og tilveruna. Þegar best lætur geta samfélög af þessu tagi verið stórkostlegur suðupottur hugmynda þar sem eitthvað nýtt verður mikilsvert framlag til þróunar samfélagsins og þeirrar menningar sem það hvílir á. Menning er ekki fyrirbæri heldur ferli og tekur m.a. mið af samskiptum, hugmyndum og atferli þeirra sem samfélagið byggja á hverjum tíma. Íslendingar hafa til dæmis notið ávaxta fjölmenningarinnar í fjölbreyttari matargerð og gróskumeira tónlistarlífi, svo eitthvað sé nefnt. Til þess að nýta kosti fjölmenningarsamfélagsins til fulls verðum við þó að hlúa að því og efna til lifandi og einlægrar umræðu um kosti þess, áskoranir og afleiðingar. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að umræðan á Íslandi sé skammt á veg komin, og hefur að verulegu leyti einskorðast við afmarkaðan hluta fræðasamfélagsins, stofnanir og stefnumótendur. Sú stefna sem íslenskt samfélag tekur á næstu misserum ræðst af því hvernig umræðunni vindur fram. Þróun fólksflutninga til Íslands hefur verið mjög hröð og á tíu árum hefur fjöldi innflytjenda margfaldast. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar af erlendum uppruna 2,1% íbúa á Íslandi árið 1998, en 7,6% í lok árs 2008. Það er ekki sjálfgefið að allir átti sig á þessum nýja veruleika, og í raun er ýmislegt sem bendir til þess að margir séu óöruggir og ringlaðir, bæði innfæddir og innflytjendurnir sjálfir. Ekki síst þeir sem hafa búið hér lengi. Þess vegna tel ég mjög brýnt að skapa grundvöll fyrir almennari samræðu en nú tíðkast um viðfangsefnin sem fjölmenningunni fylgja. Við verðum að leitast við það óttalaust og í einlægni að svara þeim spurningum sem vefjast fyrir fólki sem allt í einu vaknar upp við að búa í fjölmenningarsamfélagi sem það ekki skilur. Eigi okkur að takast að njóta allra framandi og góðu ávaxtanna verðum við að færa umræðuna nær þeim sem lifa hinn fjölmenningarlega veruleika á hverjum degi. Þar á ég við innflytjendurna sjálfa, vini þeirra og nágranna, kennara, bæjarstarfsmenn, fjölmiðlafólk og svo framvegis. Almenningur þarf að vera meðvitaður og eins sáttur og unnt er við þær óumflýjanlegu breytingar sem eru að eiga sér stað, gera sér grein fyrir þeirri skyldu sem hvert samfélag hefur gagnvart sjálfu sér og gangast við kröfunni um að mannréttindi allra séu virt í hvívetna. Innflytjendurnir sjálfir þurfa að taka þátt í umræðunni svo þeir viti hvaða réttindi þeir hafa og hvaða skyldur þeir gangast undir með því að setjast að á Íslandi. Öll þurfum við að koma okkur saman um þær kröfur sem eðlilegt er að gera hvert til annars - og hafa tiltækar aðferðir svo mögulegt sé að standa undir þeim. Hvað eigum við t.d. við þegar við gerum kröfu um að innflytjendur aðlagist - en leggjum um leið ríka áherslu á að þeir haldi í menningu sína og uppruna? Hvar liggja mörkin? Hvaða skilaboð erum við að senda fólki þegar við gerum kröfu um að innflytjendur læri íslensku - en bjóðum svo ekki upp á tækifæri til þess? Hvers vegna er fólk í sumum tilvikum reiðubúið til þess að umbera misbeitingu og kúgun innan hóps sem hefur ólíkan menningarlegan bakgrunn, en ekki meðal innfæddra? Hvers vegna telja margir atvinnurekendur sjálfsagt að bjóða innflytjendum lægri laun en Íslendingum? Spurningarnar eru margar og brýnt að við þeim fáist viðunandi svör. Í því skyni þurfum við, sem samfélag og sem manneskjur, að ráðast í siðferðilegt endurmat á afstöðu okkar til fjölmenningarsamfélagsins. Höfundur er framkvæmdastjóri Rauða krossins á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir Skoðun „En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Skynsemi, ábyrgð og fjölskylduvæn framtíð í Fjarðabyggð Baldur Marteinn Einarsson skrifar Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Lesblindir og skóli án aðgreiningar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Þátttakendur – ekki áhorfendur Dagbjört Höskuldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun „En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Popúlískar staðreyndir eða hvað! Einar Gísli Gunnarsson skrifar Skoðun Frelsið til að eiga heimili Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Græna, græna byltingin Ómar H. Kristmundsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn Árni Rúnar Árnason skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Geðheilbrigðisvandi, taktu númer…. Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég kýs með leikskólahjartanu Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson skrifar Sjá meira
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun