Kær búbót á erfiðum tímum 19. nóvember 2009 06:00 Eitt af mínum fyrstu verkum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var að heimila strandveiðar með undirritun reglugerðar þann 25. júní sl., en veiðar þessar höfðu áður verið boðaðar af forvera mínum í embættinu, Steingrími J. Sigfússyni. Nú er beðið eftir því að lokið verði mati á árangri tilraunarinnar og lagður grunnur fyrir framhaldi þessara veiða á næsta ári. Eins og við mátti búast hafa komið fram úrtöluraddir gegn þessum veiðum og því m.a. mótmælt að strandveiðarnar hafi tekist vel og sömuleiðis því haldið fram að strandveiðarnar stuðli hvorki að nýliðun í atvinnugreininni né bættri aflameðferð. Nú er það svo með þetta mál sem önnur að sitt sýnist hverjum og sannarlega hef ég fengið þakkir fyrir að heimila strandveiðarnar frá fjölmörgum, m.a. frá flestum ef ekki öllum félögum smábátasjómanna í landinu. Fyrir skömmu barst mér bréf sem innihélt þakkir fyrir strandveiðar frá smábátasjómönnum og íbúum í Langanesbyggð. Í bréfinu segir m.a.: „Með bréfi þessu viljum við undirritaðir í Langanesbyggð koma á framfæri þökkum okkar fyrir þá miklu framför sem strandveiðikerfið er og það mikla líf sem það hefur hleypt í hafnir landsins. Hér í Langanesbyggð reri í sumar vel á annan tug báta og höfðu um 25 manns beina atvinnu af þessum róðrum auk afleiddra starfa. Kemur slíkt sér vel í ekki stærra byggðalagi. Er það mat okkar að hér sé um kæra búbót að ræða á erfiðum tímum." Bréf þetta var undirritað af 183 einstaklingum í Langanesbyggð.. Mér er ljúft að þakka þessa kveðju og tel rétt að koma henni á framfæri við landsmenn. Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Eitt af mínum fyrstu verkum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var að heimila strandveiðar með undirritun reglugerðar þann 25. júní sl., en veiðar þessar höfðu áður verið boðaðar af forvera mínum í embættinu, Steingrími J. Sigfússyni. Nú er beðið eftir því að lokið verði mati á árangri tilraunarinnar og lagður grunnur fyrir framhaldi þessara veiða á næsta ári. Eins og við mátti búast hafa komið fram úrtöluraddir gegn þessum veiðum og því m.a. mótmælt að strandveiðarnar hafi tekist vel og sömuleiðis því haldið fram að strandveiðarnar stuðli hvorki að nýliðun í atvinnugreininni né bættri aflameðferð. Nú er það svo með þetta mál sem önnur að sitt sýnist hverjum og sannarlega hef ég fengið þakkir fyrir að heimila strandveiðarnar frá fjölmörgum, m.a. frá flestum ef ekki öllum félögum smábátasjómanna í landinu. Fyrir skömmu barst mér bréf sem innihélt þakkir fyrir strandveiðar frá smábátasjómönnum og íbúum í Langanesbyggð. Í bréfinu segir m.a.: „Með bréfi þessu viljum við undirritaðir í Langanesbyggð koma á framfæri þökkum okkar fyrir þá miklu framför sem strandveiðikerfið er og það mikla líf sem það hefur hleypt í hafnir landsins. Hér í Langanesbyggð reri í sumar vel á annan tug báta og höfðu um 25 manns beina atvinnu af þessum róðrum auk afleiddra starfa. Kemur slíkt sér vel í ekki stærra byggðalagi. Er það mat okkar að hér sé um kæra búbót að ræða á erfiðum tímum." Bréf þetta var undirritað af 183 einstaklingum í Langanesbyggð.. Mér er ljúft að þakka þessa kveðju og tel rétt að koma henni á framfæri við landsmenn. Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar