Segir Ísland ráða við erlendar skuldir sínar 29. október 2009 19:04
Ef ekki væri fyrir gjaldeyrishöftin þyrftu stýrivextir líklega að vera 40-50%, segir Mark Flanagan, verkefnisstjóri hjá AGS. Hann telur að Ísland ráði við erlendar skuldir sínar, sem jafngilda þrefaldri landsframleiðslu. Þetta kom fram á símafundi fjölmiðla með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í dag. Fulltrúar sjóðsins telja að með endurskoðuninni sem fór fram í gær minnki líkurnar á að lánshæfismat Íslands lækki. Áætlun AGS og Íslands gengur meðal annars út á að styrkja gjaldeyrisforðann með lántökum til að auka tiltrú á efnahagslífinu og styðja við gengi krónunnar. Nú hefur hins vegar komið í ljós að forðann á einnig að nota til að greiða niður önnur erlend lán. Flanagan segir stjórnvöld ráða því hvernig forðinn er nýttur, og að við vissar aðstæður sé ráðlagt að beita forðanum í að styrkja krónuna. Eins og fréttastofa greindi frá í júlí eru erlendar skuldir Ísland mun hærri en talið var þegar samkomulagið við sjóðinn var gert í fyrra, en þær eru nú rúm þreföld landsframleiðsla. Flanagan telur að afgangur af utanríkisviðskiptum muni duga til. Háir stýrivextir Seðlabankans hafa verið harðlega gangrýndir úr ýmsum áttum en lækkun stýrivaxta er ein meginforsendan í svokölluðum stöðugleikasáttmála sem undirritaður var í sumar. Mark Flanagan segir hins vegar að gjaldeyrishöftin hafi gert Seðlabankanum kleift að hafa stýrivexti einungis 12-18%. Án gjaldeyrishaftanna þyrftu vextirnir að vera 40-50% - það er að segja til að koma í veg fyrir enn frekara hrun á krónunni. Næsta endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands fer fram í desember en þá verður meðal annars lögð áhersla á skuldavanda heimila og fyrirtækja.
Tengdar fréttir AGS: Skilyrði að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum Það er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) að skilyrði séu nú að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum á Íslandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Murilo Portugal aðstoðarforstjóra AGS sem gefin var út í trengslum við endurskoðun sjóðsins á áætlun hans og íslenskra stjórnvalda sem samþykkt var í gærdag. 29. október 2009 09:31 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira
AGS: Skilyrði að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum Það er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) að skilyrði séu nú að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum á Íslandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Murilo Portugal aðstoðarforstjóra AGS sem gefin var út í trengslum við endurskoðun sjóðsins á áætlun hans og íslenskra stjórnvalda sem samþykkt var í gærdag. 29. október 2009 09:31