Skoðun

Með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi

Jórunn Frímannsdótti skrifar

Borgarfulltrúi Björk Vilhelmsdóttir fer stórum orðum í grein í Fréttablaðinu í gær um að til standi að flytja þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða 300 metra til austurs. Hún gerir samráðsleysi og ákvarðanatöku borgarstjóra að umtalsefni en hefur greinilega gleymt að kynna sér staðreyndir málsins.

Þær eru eftirfarandi: Um leið og ljóst var á síðasta ári að verulegur samdráttur væri líklegur í tekjum borgarinnar á sama tíma og aukning yrði á þjónustu lá fyrir að leita þyrfti allra leiða til að draga úr kostnaði borgarinnar. Þar með talið að nýta betur húsnæði stofnana borgarinnar. Velferðarráði öllu og þar með talið fulltrúum minnihlutans var fullkunnugt um þær ráðagerðir. Strax var gengið í að skoða alla leigusamninga og í ljós kom að leigusamningur Þjónustumiðstöðvarinnar rennur út á árinu 2010. Möguleikinn á að flytja þjónustumiðstöðina – í Höfðatorg eða annað – var kynntur og ræddur við framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvarinnar strax fyrir jól á árinu 2008.

Á vormánuðum 2009 var haldið áfram að yfirfara húsnæðismál í borginni. Eftir að hafa skoðað aðra kosti sem til greina komu fyrir húsnæði undir þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, m.a. í miðborginni, var staðan metin þannig að hagkvæmast væri, út frá fjárhag, aðgengi og þjónustu, að flytja þjónustumiðstöðina í Höfðatorg. Þar eru fyrir fjölmargar stofnanir borgarinnar þ.m.t. aðalskrifstofur Velferðarsviðs, Framkvæmda- og eignasviðs,

Umhverfis og samgöngusviðs, þjónustuver og símaver.

Borgarfulltrúinn bendir einnig á að hundruð manna komi í hverri viku í þjónustumiðstöðina. Hún telur það of mikinn fjölda til að beina í nýtt, stórt og bjart húsnæði í Höfðatorgi, en telur betra að beina borgarbúum sem óska eftir þjónustu að Tjarnargötu 12. Þar gleymir borgarfulltrúinn aftur að kynna sér staðreyndir s.s. að aðgengi er þar þröngt, húsnæðið er á þremur hæðum og lítið er af bílastæðum. Loks má benda á að staðsetningin að Tjarnargötu 12 er ekki síður en Höfðatorg í útjaðri þess svæðis sem þjónustumiðstöðinni er ætlað að sinna.

Ég hvet borgarfulltrúa og góða samstarfskonu í velferðarráði til margra ára, Björk Vilhelmsdóttur, að láta af rangfærslum um sjálfsögð og nauðsynleg hagræðingarmál og beina kröftum sínum frekar að því að hugsa upp leiðir til að borgin geti áfram veitt nauðsynlega grunnþjónustu til íbúa við erfiðar aðstæður – þó í nýju húsnæði sé. Þingmönnum Samfylkingar og Vinstri grænna var tíðrætt um nauðsyn samstöðu við erfiðar aðstæður í umræðum á Alþingi um stefnu forsætisráðherra á dögunum. Ég hvet samstarfsfólk mitt í þessum flokkum í borgarstjórn til að ganga á undan með góðu fordæmi á okkar sameiginlega vettvangi.

Höfundur er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.




Skoðun

Skoðun

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar

Sjá meira


×