Fjármálaráðherra: Við komumst betur út úr þessu en óttast var Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. júlí 2009 22:00 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að Íslendingar komist betur út úr kreppunni en óttast var. Mynd/ Pjetur. „
Vélarnar eru í fullum gangi," er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á vef breska blaðsins Telegraph. Telegraph segir raunar að hið sama eigi við um Steingrím J. Sigfússon sem hafi í síðustu viku komið á fót þremur nýjum bönkum í stað þeirra gömlu. Hagkerfið sé að komast í eðlilegt horf að nýju. „Við munum komast betur út úr þessu en óttast var," er haft eftir Steingrími. „Við finnum fyrir virkni í hagkerfinu og að mörgu leyti má þakka genginu það," bætir hann við. Telegraph segir að gengi krónunnar hafi fallið um helming gagnvart evru frá því að bankarnir þrír hrundu í október á síðasta ári og íslenska hagkerfið með. Ekkert sé ódýrt á Íslandi en verðlagið sé þó viðráðanlegt. Kaffihúsin séu um þessar mundir full af ungmennum frá Evrópu sem geti notið næturlífsins. Á Íslandi megi nú finna vel stæða japanska ferðamenn, sem eitt sinn voru sjaldséðir. Þeir fari á matsölustað Sigga Hall eða í verslanir 66° Norður í Bankastræti, sem dæmi. Telegraph segir að Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) búist við því að samdráttur verði um 7% á Íslandi þetta árið. Það sé töluvert minni samdráttur en í Írlandi, þar sem hann verði 9,8%. Hagkerfið hér muni jafna sig hraðar en á Írlandi. Telegraph gerir hins vegar ekki lítið úr vanda Íslendinga. Til dæmis hafi launþegar tekið á sig allt að 10% launalækkanir. Þá standi Íslendingar frammi fyrir 5% niðurskurði í heilbrigðis- og velferðarkerfinu, 7% niðurskurði í menntakerfinu og 10% niðurskurði annarsstaðar í opinberum rekstri.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira