Helgi Hóseasson og staðfestar ógildingar Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar 24. september 2009 06:00 Baráttumál Helga Hóseassonar hafa oft verið illa misskilin. Fáir hafa í raun reynt að skilja hvers vegna hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. Flestum þykir skírnin innihaldslaus gjörningur og velta til því dæmis ekkert fyrir sér að þeir sem framkvæma hana telja, allavega samkvæmt kenningum ríkiskirkjunnar, að saklausa litla barnið sé syndugt. Jón Valur Jensson Moggabloggari náði nýlega að innsigla réttmæti málflutnings Helga Hóseassonar. JVJ sagði: „En hversu mjög sem einhverjum kynni að vera í nöp við t.d. fyrrverandi maka, þá er ekki leyfilegt að þurrka út færslu um hjónavígslu þeirra í embættisbókum, þó að viðkomandi hafi fengið lögskilnað. Það sama gildir um skráningu kirkjubókar á skírn." Það sem Jóni Vali yfirsést er að fólk sem á fyrrverandi maka hefur væntanlega fengið skilnað sinn skráðan á opinbera pappíra til að staðfesta að fyrri skráning eigi ekki lengur við. Helgi Hóseasson vildi einmitt álíka viðurkenningu en fékk aldrei. Af öllu er ljóst að það voru kirkjuyfirvöld sem stöðvuðu það. Ólíkt fólki sem hefur gengið í hjónaband þá var Helgi ekki í þeirri stöðu að geta tekið upplýsta afstöðu til skírnarsáttmálans þegar hann var gerður og þegar hann var staðfestur. Fólk sem er skráð í hjónaband án þess að hafa fengið að taka til þess upplýsta afstöðu fær ógildingu. Það sama hefði átt að gilda um skírnarsáttmála Helga. Frá sjónarhóli Nýja testamentisins er ljóst að ólík afstaða ríkiskirkjunnar til skírnarsáttmálans annars vegar og hjónabandssáttmálans hins vegar er ákaflega vafasöm. Jesús hafnaði skilnaði alfarið en ríkiskirkjan þykist vita betur en hann. Jesú datt ekki í hug að skíra ungabörn sem ekki gátu tekið upplýsta afstöðu til boðskaps hans en ríkiskirkjan þykist líka vita betur þar. Ef ríkiskirkjan þykist geta ógilt hjónabandssáttmála þá ætti það að vera hægur vandi að ógilda skírnarsáttmála. Helga tókst ekki að fá helsta baráttumál sitt í gegn en honum tókst að afhjúpa prestana og biskupana sem monta sig af „góðverkum" sem þeir vinna á launum hjá almenningi. Kirkjan gat ekki einu sinni leyft Helga að fá lausn sinna mála þegar hann var orðinn gamall maður. Það hefði ekki kostað neitt. Þetta fólk hafði ótal tækifæri en situr núna eftir með skömmina. Tvískinnungurinn er afhjúpaður. Höfundur er þjóðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Baráttumál Helga Hóseassonar hafa oft verið illa misskilin. Fáir hafa í raun reynt að skilja hvers vegna hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. Flestum þykir skírnin innihaldslaus gjörningur og velta til því dæmis ekkert fyrir sér að þeir sem framkvæma hana telja, allavega samkvæmt kenningum ríkiskirkjunnar, að saklausa litla barnið sé syndugt. Jón Valur Jensson Moggabloggari náði nýlega að innsigla réttmæti málflutnings Helga Hóseassonar. JVJ sagði: „En hversu mjög sem einhverjum kynni að vera í nöp við t.d. fyrrverandi maka, þá er ekki leyfilegt að þurrka út færslu um hjónavígslu þeirra í embættisbókum, þó að viðkomandi hafi fengið lögskilnað. Það sama gildir um skráningu kirkjubókar á skírn." Það sem Jóni Vali yfirsést er að fólk sem á fyrrverandi maka hefur væntanlega fengið skilnað sinn skráðan á opinbera pappíra til að staðfesta að fyrri skráning eigi ekki lengur við. Helgi Hóseasson vildi einmitt álíka viðurkenningu en fékk aldrei. Af öllu er ljóst að það voru kirkjuyfirvöld sem stöðvuðu það. Ólíkt fólki sem hefur gengið í hjónaband þá var Helgi ekki í þeirri stöðu að geta tekið upplýsta afstöðu til skírnarsáttmálans þegar hann var gerður og þegar hann var staðfestur. Fólk sem er skráð í hjónaband án þess að hafa fengið að taka til þess upplýsta afstöðu fær ógildingu. Það sama hefði átt að gilda um skírnarsáttmála Helga. Frá sjónarhóli Nýja testamentisins er ljóst að ólík afstaða ríkiskirkjunnar til skírnarsáttmálans annars vegar og hjónabandssáttmálans hins vegar er ákaflega vafasöm. Jesús hafnaði skilnaði alfarið en ríkiskirkjan þykist vita betur en hann. Jesú datt ekki í hug að skíra ungabörn sem ekki gátu tekið upplýsta afstöðu til boðskaps hans en ríkiskirkjan þykist líka vita betur þar. Ef ríkiskirkjan þykist geta ógilt hjónabandssáttmála þá ætti það að vera hægur vandi að ógilda skírnarsáttmála. Helga tókst ekki að fá helsta baráttumál sitt í gegn en honum tókst að afhjúpa prestana og biskupana sem monta sig af „góðverkum" sem þeir vinna á launum hjá almenningi. Kirkjan gat ekki einu sinni leyft Helga að fá lausn sinna mála þegar hann var orðinn gamall maður. Það hefði ekki kostað neitt. Þetta fólk hafði ótal tækifæri en situr núna eftir með skömmina. Tvískinnungurinn er afhjúpaður. Höfundur er þjóðfræðingur.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar