Innlend fyrirtæki skulda 4.600 milljarða hérlendis 26. október 2009 15:30
Útistandandi lán íslenskra lánastofnana til innlendra fyrirtækja námu rúmlega 4.600 milljarðar kr. í lok júní í ár. Stærstu skuldunautar eru eignarhaldsfélög með um 39% af heildarútlánum. Að eignarhaldsfélögum frátöldum eru þjónustufyrirtæki stærstu skuldunautarnir með tæp 26% af heildarútlánum til fyrirtækja. Útlán til sjávarútvegsfyrirtækja nema 11,5% og lán til fyrirtækja í verslun um 9%. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðuleiki 2009 sem Seðlabankinn birtir í dag. Upplýsingarnar eru samkvæmt upplýsingum sem Seðlabankinn fékk frá innlánsstofnunum í lok júní s.l. Útlán til eignarhaldsfélaga höfðu fimmfaldast á þremur árum fram til bankahrunsins í septemberlok í fyrra. Um 70% lána til eignarhaldsfélaga eru gengisbundin, svipað og hlutfall gengisbundinna lána í heild. Helmingur útlána til eignarhaldsfélaga eru hins vegar kúlulán sem er umtalsvert hærra en almennt gerist, u.þ.b. þriðjungur allra fyrirtækjalána eru kúlulán. Höfuðstóll 3% útistandandi lána til eignarhaldsfélaga hefur verið frystur. Vanskil meðal eignarhaldsfélaga eru meiri en almennt gerist, eða 57%. Af þeim lánum sem eru í vanskilum eru 80% í alvarlegum vanskilum.Þessu til viðbótar hafa lán til eignarhaldsfélaga jafnan verið veitt til skamms tíma og falla 55% heildareftirstöðva í gjalddaga næstu tvö árin. Rúmlega þriðjungur gengisbundinna lána er í evrum, rúmlega fimmtungur í svissneskum frönkum og tæplega fimmtungur í japönskum jenum. Gjaldmiðlasamsetning gengisbundinna lána fyrirtækja virðist því ólík samsetningu útflutningstekna. Lítill hluti útflutningstekna þjóðarinnar er í lágvaxtagjaldmiðlum á borð við japönsk jen og svissneska franka en stærstur hluti útflutningstekna er í evrum og Bandaríkjadölum. Því er ljóst að þrátt fyrir að tekjur fyrirtækja séu í erlendum gjaldmiðlum geta lánasöfn þeirra verið viðkvæm fyrir innbyrðis gengishreyfingum helstu gjaldmiðla. Í einhverjum tilvikum gæti slík áhætta hafa verið varin með gerð framvirkra samninga en þar sem slíkir samningar eru nú í gömlu bönkunum og markaður með skiptasamninga hefur legið niðri um langt skeið er ljóst að um gengisáhættu getur verið að ræða.
Mest lesið Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira