Tekinn með fullt af grillkjöti 25. júní 2009 14:43 Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt.
Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Í Kópavogi var brotist inn í tvo bíla og munir teknir úr öðrum þeirra. Sami maður reyndist hafa verið að verki í báðum tilvikum. Hann er á þrítugsaldri og var færður í fangageymslu lögreglunnar. Maðurinn var mjög vel birgur af grillkjöti þegar hann var handtekinn en fátt var um svör þegar spurt var hvaðan maturinn væri kominn. Þjófur lét greipar sópa í húsi í Árbænum og hafði á brott með sér mikið af verðmætum. Karl á fimmtugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins og hefur hann viðurkennt að hafa verið þarna að verki. Unnið er að því að endurheimta það sem stolið var. Fatnaði og snyrtivörum var stolið úr fjölbýlishúsi í miðborginni en þjófurinn er ófundinn. Nagladekkjum var stolið úr fyrirtæki í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði voru dekkjaþjófar líka á ferðinni. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í síðarnefnda dekkjamálinu. Tvær konur voru staðnar að hnupli í matvöruverslunum. Þær eru báðar á fertugsaldri en önnur var tekin í vesturbænum en hin í miðborginni. Í miðborginni var einnig stolið veski og vegabréfi af ferðamanni sem fékk sér hressingu á ónefndu veitingahúsi. Sá ætlaði af landi brott í dag og varð því fyrir allnokkrum óþægindum vegna þessa. Loks var tilkynnt um þjófnað á þremur gaskútum í gær. Tveimur var stolið í Grafarvogi og einum í Mosfellsbæ.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Sjá meira