Edda Garðarsdóttir var vitanlega heldur svekkt eftir sigur Frakka á Íslandi á EM í knattspyrnu í kvöld en var ákveðin í því að láta það ekki á sig fá.
„Það er búið að flauta þennan leik af," sagði Edda í samtali við Rúv í kvöld. „Við þurfum að byrja að vera jákvæðar strax og hugsa fram á veginn. Við getum ekkert gert í því hvernig þessi leikur fór en við getum ráðið því hvernig við mætum stemmdar í leikinn gegn Norðmönnum."
„Við höfum tak á þeim eftir að við unnum þær í vor. Það er að duga eða drepast fyrir okkur. Við verðum að taka þær ef við ætlum okkur áfram upp úr riðlinum."