Eðlilega staðið að rekstri Tals 12. febrúar 2009 20:21 Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.
Teymi mótmælir harðlega fullyrðingum um að félagið hafi staðið óeðlilega að rekstri Tals. Fullyrðingar um að Teymi hafi hlutast til um verkefni stjórnar eftir að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins tóku þar sæti eru stórlega orðum auknar, að fram kemur í tilkynningu frá Teymi sem Þórdís J. Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Jóhannesson skrifa undir. Einu afskipti Teymis af stjórnarsetu hinna óháðu stjórnarmanna fólust í áréttingu félagsins um að lögum væri fylgt í hvívetna. Í tilkynningunni segir að deilurnar sem verið hafa í eigendahópi Tals séu hluthafadeilur og snúist ekki um samkeppnislegt sjálfstæði Tals. ,,Við stofnum félagsins var samið um að Teymi gæti á þessu ári keypt hlut minnihlutaeigenda á tilteknu verði, sem tæki mið af rekstrarárangri félagsins. Í ljósi breyttra rekstraraðstæðna er útlit fyrir að minnihlutaeigendur fái einungis brot af því verðmæti sem þeir stefndu að." Teymi lítur svo á, að sú staðreynd sé orsök deilnanna enda hafi samkeppni á fjarskiptamarkaði aldrei verið meiri en eftir stofnun Tals á síðasta ári. ,,Fyrrverandi forstjóra Tals, sem enn situr í stjórn félagsins í umboði minnihlutaeigenda, var vikið úr starfi í desember sl. fyrir alvarleg brot á skyldum sínum. Fullyrðingar um að brottvikning hans og ráðning nýs forstjóra hafi verið ólögmæt eru rangar. Sá úrskurður Fjármálaráðuneytisins, sem vísað hefur verið til í því samhengi, hefur verið afturkallaður af ráðuneytinu auk þess sem hann kvað ekki á um lögmæti brottvikningarinnar." Teymi harmar að minnihlutaeigendur í Tali skuli hafa valið að útkljá hluthafadeilur með því að draga ítrekað úr trúverðugleika Tals, stjórnenda og starfsmanna félagsins.
Tengdar fréttir Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52 Fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hættir í stjórn Tals Stjórnarmenn sem Samkeppniseftirlitið tilnefndi í stjórn IP fjarskipta, eða Tals, þann 6. febrúar síðastliðinn hafa báðir sagt sig úr stjórninni. Þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson tóku sæti í stjórninni í stað fulltrúa Teymis að kröfu Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 12:04 Saka Teymi um viðskiptasóðaskap Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. 12. febrúar 2009 16:38 Segja brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta Fram kemur í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta, eða Tals, að brottvikning Hermanns Jónssonar úr starfi framkvæmdastjóra í desember hafi verið ólögmæt. 12. febrúar 2009 17:38 Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Íhuga frekari aðgerðir gegn Teymi Þær ástæður sem stjórnarmenn tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu í stjórn IP fjarskipta eða Tals, gáfu fyrir úrsögn sinni í gær gefa tilefni til grunsemda um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali og samkeppnislegu sjálfstæði þess að sögn Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 14:52
Fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hættir í stjórn Tals Stjórnarmenn sem Samkeppniseftirlitið tilnefndi í stjórn IP fjarskipta, eða Tals, þann 6. febrúar síðastliðinn hafa báðir sagt sig úr stjórninni. Þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson tóku sæti í stjórninni í stað fulltrúa Teymis að kröfu Samkeppniseftirlitsins. 12. febrúar 2009 12:04
Saka Teymi um viðskiptasóðaskap Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta eða Tals, kemur fram að þeir hafi aldrei kynnst öðrum eins viðskiptasóðaskap og þeir hafi orðið vitni að í þá fáu daga sem þeir störfuðu í stjórn Tals. Tvímenningarnir voru tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu og sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri þess við fréttastofu í dag að ástæður úrsagnar þeirra veki grun um áframhaldandi brot Teymis gagnvart Tali. 12. febrúar 2009 16:38
Segja brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta Fram kemur í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér um leið og þeir sögðu sig úr stjórn IP fjarskipta, eða Tals, að brottvikning Hermanns Jónssonar úr starfi framkvæmdastjóra í desember hafi verið ólögmæt. 12. febrúar 2009 17:38
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent