Viðskipti innlent

Eimskip selur hlutinn sinn í Containerships

Eimskip hefur gert samning um sölu á 65% hlut sinn í finnska skipafélaginu Containerships. Kaupandi er Container Finance sem verið hefur minnihluta eigandi í Containerships. Salan er gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar félagsins og að aflétting veða takist. Með þessu lækka skuldir félagsins um 11 milljarða kr.

Í tilkynningu segir að Eimskip keypti hlut sinn í Containerships í október 2006 og hefur rekið félagið sem sjálfstæða einingu innan Eimskips samstæðunnar. Containerships og Eimskip munu halda samstarfi sínu áfram þar sem Eimskip verður áfram umboðsaðli Containerships í Danmörku og Containerships verður umboðsaðli Eimskip Finnlandi.

Salan á Containerships er liður í fjárhagslegri endurskipulagningu Eimskip og mun salan lækka skuldir félagsins um tæpa 11 milljarða ISK, en sölutap af sölunni er um 3,9 milljarðar króna. Auk þess er salan liður í því að selja þær eignir félagsins sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins til framtíðar þ.e.a.s siglingum á Norður Atlansthafi og alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.

Eimskip heldur áfram vinnu við endurskipulagningu í samræmi við það sem áður hefur verið tilkynnt. Enn er unnið að sölu á frystigeymslustarfseminni í Norður-Ameríku en það ferli hefur tekið lengri tíma en í fyrstu var áætlað. Markmiðið er að endurskipulagningu ljúki fyrir lok júní eins og áður hefur verið tilkynnt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×