Ótrúlegur sigur hjá Liverpool - Hermann skoraði 7. febrúar 2009 19:26 Hermann Hreiðarsson lét heldur betur finna fyrir sér í kvöld Nordic Photos / Getty Images
Liverpool er aftur komið á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir ævintýralegan 3-2 sigur á Portsmouth á útivelli í kvöldleiknum. Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth í dag og þurftu heimamenn nauðsynlega á sigri að halda eftir skelfilegt gengi undanfarið. Fyrri hálfleikur var fremur daufur en í þeim síðari ætlaði allt um koll að keyra. David Nugent kom heimamönnum yfir á 62. mínútu en Fabio Aurelio jafnaði fyrir Liverpool aðeins sjö mínútum síðar með skoti eftir óbeina aukaspyrnu. Hún var dæmd var upp úr glórulausum mistökum Peter Crouch sem í raun gaf fyrrum félögum sínum mark með klaufaskapnum. Þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma birti þó til á ný hjá heimamönnum þegar Hermann Hreiðarsson skoraði með skalla og kom Portsmouth í 2-1. Staðan var þarna orðin ansi vænleg fyrir heimamenn, en eins og svo oft áður í stjóratíð Tony Adams, stóð fögnuðurinn stutt. Vörn Portsmouth var steinsofandi á 85. mínútu þegar Dirk Kuyt fékk að valsa um teiginn og jafna fyrir Liverpool og þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma tryggði varamaðurinn Fernando Torres liðinu gríðarlega mikilvægan sigur í toppbaráttunni. Liverpool hefur 54 stig eftir 25 leiki, Manchester United hefur 53 stig eftir 23 leiki og Aston Villa hefur 51 stig í þriðja sætinu. Portsmouth er í bullandi fallbaráttu með aðeins 24 stig - einu stigi frá fallsvæðinu ásamt Stoke og Tottenham. Manchester United getur komist aftur á toppinn á morgun með sigri á West Ham.
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira