Crouch finnur til með Robbie Keane 7. febrúar 2009 15:50 NordicPhotos/GettyImages
Peter Crouch, framherji Portsmouth og fyrrum leikmaður Liverpool, segist finna til með írska landsliðsmanninum Robbie Keane eftir misheppnaða dvöl hans í Bítlaborginni. Keane náði sér aldrei á strik sem leikmaður Liverpool og var fyrir skömmu sendur aftur til Tottenham, þaðan sem hann var keyptur fyrir metfé eftir aðeins 16 leiki fyrir þá rauðu. Crouch finnur til með Keane eftir að hafa sjálfur upplifað að vera eins og jójó inn og út úr liði Liverpool. Hann segist aldrei hafa botnað í því hvað Rafa Benitez var að hugsa þegar hann valdi lið sitt. "Það er vissulega margt líkt með því sem gerðist hjá mér og Robbie Keane hjá Liverpool. Við vitum öll að Keane er frábær leikmaður en hann fékk ekki tækifæri til að sanna sig hjá Liverpool. Svona er þetta með Rafa. Þegar ég spilaði þarna, vissi ég aldrei af hverju ég var ekki að spila," sagði Crouch og útskýrði mál sitt frekar. "Ég hélt um tíma að ég væri bara alls ekki inni í myndinni hjá honum, en þá hafði hann mig í byrjunarliðinu þrjá leiki í röð. Það kom að því að ég hætti alveg að spá í hvenær ég myndi spila og hvenær ekki og það var súrast að fá ekki að spila úrslitaleikinn í Meistaradeildinni þar sem hann byrjaði með Kuyt einan frammi," sagði Crouch í samtali við Sun. Hann segir þó ekki hægt að gagnrýna Benitez harðlega á meðan hann nær árangri með Liverpool. "Stuðningsmönnum Liverpool er alveg sama hvernig maður Rafa er á meðan liðið er að vinna. Það er ekki hægt að segja að hann hafi ekki náð fínum árangri, en svona lagað getur samt verið svekkjandi," sagði Crouch. Hann viðurkennir að hann væri alveg til í að skora á móti Liverpool seinna í dag. "Rafa sagði mér að hann hefði mikla trú á mér þegar ég fór til Portsmouth og því hef ég ekkert sérstakt að sanna í þessum leik. Það er hinsvegar alltaf sérstakt að spila á móti sínu gamla félagi og því væri gaman að skora," sagði hinn leggjalangi framherji.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira