Viðskipti innlent

Fraktflugvélar Icelandair Cargo auglýsa íslenskan sjávarútveg

Fraktflugvélar Icelandair Cargo hafa verið merktar með merki íslensks sjávarútvegs um ábyrgar veiðar og slagorðinu Absolutely Fresh.

Í tilkynningu segir að flutningur á ferskum sjávarafurðum frá Íslandi á markaði erlendis er ein af undirstöðunum í starfsemi Icelandair Cargo. Merkingin er viðleitni félagsins til að styðja markaðsstarf íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuðum. Leiðarkerfi Icelandair Cargo gegnir lykilhlutverki við að tryggja ferskleika, gæði og áreiðanleika íslenskra sjávarafurða. Ferskur fiskur er verðmætasta útflutta sjávarafurð íslendinga.

"Flutningur á ferskum fiski hefur aukist mjög hjá okkur síðustu misseri og er ein af undirstöðum í starfsemi Icelandair Cargo. Við markaðssetningu og verðmætasköpun á ferskum sjávarafðurm, skipta auk ferskleika ýmsir aðrir þættir veigamiklu máli, svo sem áreiðanleiki, afhendingaröryggi og síðast en ekki síst sjálfbærni fiskistofna. Íslandi hefur verið í fararbroddi í heiminum í ábyrgri fiskveiðistjórn. Þetta merki er tákn íslensks uppruna og ábyrgra veiða og er til þess ætlað að byggja traust og þekkingu viðskiptavina á vörunni. Við viljum vera öflugur liðsmaður í þessari starfsemi og berum merki íslenskra sjávarafurða með miklu stolti á farkostum okkar," segir Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo.

Icelandair Cargo rekur nú fimm Boeing 757-200 fraktvélar, tvær sem fljúga til og frá landinu í áætlunarflugi og þrjár sem sinna ýmsum verkefnum í Evrópu. Auk þess selur Icelandair Cargo flutningarými á öllum áætlunarleiðum Icelandair, en félagið býður þjónustu til tæplega þrjátíu staða beggja vegna Atlantshafsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×