Guðmundur Ágúst: Þurfti að horfast í augu við raunveruleikann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. maí 2009 22:16 Guðmundur Ágúst Ingvarsson, fyrrverandi formaður HSÍ.
Guðmundur Ágúst Ingvarsson segir mikla vinnu á erlendri grundu ástæðuna fyrir því að hann ákvað að draga framboð sitt til forseta IHF, Alþjóða handknattleikssambandsins, til baka. „Ég gerði mér grein fyrir því að þetta væri mikil vinna og mikil fjarvera," sagði hann í samtali við Vísi í kvöld. „Ég sá þar með fram á að ég gæti ekki klárað þetta. Mér skilst að ég hefði þurft að vera hátt í 150 daga erlendis og eins og ástandið er í dag gengur það bara ekki." Hann segir að þetta hafi runnið upp fyrir sér eftir því sem leið á kosningabaráttuna en kosið verður á þingi IHF í næsta mánuði. „Ég veit meira nú en þegar ég ákvað að bjóða mig fram. Þetta kom bara betur og betur í ljós eftir því sem ég talaði meira við fólk og aflaði mér upplýsinga." Guðmundur Ágúst segir að kosningabaráttan hafi gengið vel hjá sér. „Allir sem fara í svona baráttu vita að menn lofa ýmsu en svo kemur annað í ljós þegar kosið er. En ég fékk mjög góð viðbrögð." Sitjandi forseti sambandsins, Hassan Moustafa frá Egyptalandi, gefur aftur kost á sér í embættið og fær nú aðeins mótframboð frá Jean Kaiser frá Lúxemborg. Guðmundur Ágúst á ekki von á að sá síðarnefndi beri sigur úr býtum í kosningunum. „Það er ekki mikil hefð fyrir handbolta í Lúxemborg og hann á undir högg að sækja. Ég hefði gjarnan viljað sjá breytta forystu í sambandinu en stundum verður maður að taka ákvarðanir sem manni líkar ekki endilega við - maður þarf að horfast í augu við raunveruleikann og taka því sem að höndum ber."
Handbolti Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Elías Rafn vann Íslendingaslaginn í Danmörku Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira