Vonast til að smíði nýrrar Þjórsárbrúar hefjist í haust 19. júlí 2009 19:20 Þjórsárbrú ofan við Urriðafoss, nýja brúin verður við Árnes. Mynd/ Anton
Ný stórbrú yfir Þjórsá við Árnes mun ásamt Hvítárbrú, Landeyjahöfn og Lyngdalsheiðarvegi skapar nýtt samgöngumynstur um mestu landbúnaðarhéruð Íslands og styrkja þau verulega, að mati ráðamanna á svæðinu. Þeir vonast til að smíði nýju Þjórsárbrúarinnar hefjist í haust. Nýja brúin verður beint suðvestan frá félagsheimilinu Árnesi. Þaðan verða aðeins sjö kílómetrar frá Árnesi yfir í Rangárvallasýslu, þegar brúin kemur, en nú þarf að aka þrjátíu til fjörutíu kílómetra til að komast þaðan yfir í sýsluna handan ár. Brúarsmíðin mun þó vart hefjast fyrr en grænt ljós er komið á nýjar Þjórsárvirkjanir. Gunnar Örn Marteinsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir að brúin sé nauðsynleg vegna virkjanaframkvæmdanna og vonast hann til að unnt verði að byrja fljótlega, í haust eða vetur. Nýlega er hafin smíði nýrrar Hvítárbrúar milli Flúða og Aratungu og er stefnt að því hún verði opnuð umferð eftir rúmt ár. Í uppsveitum Suðurlands horfa menn á þessar framkvæmdir í samhengi. Margeir Ingólfsson, oddviti Bláskógabyggðar, segir að með þeim myndist þvertenging milli Reykjavíkur og Rangárvallasýslu, um Lyngdalsheiðarveg, Reykjaveg, Hvítárbrú og áfram yfir í Rangárvallasýslu um Þjórsárbrúna. Þetta muni styrkja þessi svæði öll mjög mikið. Suðurland er ekki aðeins helsta landbúnaðarhéraðið heldur eru uppsveitirnar eitt vinsælasta ferðamannasvæði landins og þar er þéttbýlasta sumarhúsabyggðin. Menn sjá mikil tækifæri skapast með nýjum samgöngumannvirkjum. Gunnar Örn, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir að allt muni þetta hjálpa verulega í allri uppbyggingu, sérstaklega í sambandi við ferðamennsku og í íbúaþróun. Ferjan til Vestmannaeyja, Gjábakkavegurinn og nýju brýrnar yfir Hvítá og Þjórsá skapi allt aðra sýn á hlutina hvað samgöngur varðar.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira