Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa Valur Grettisson skrifar 12. maí 2009 11:52 Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir á fjölmennum fundi sem haldin var um Byr. „
Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það. Salan var hinsvegar háð samþykki Skilanefndarinnar en hún stoppaði söluna í gærkvöldi eftir að Fréttastofa Stöðvar 2 hafði fjallað um málið. Maður Rakelar, Sveinn Margeirsson, er í framboði til stjórnar Byrs auk Arnars og fleiri. Þau hafa verið mikið í fjölmiðlum og barist fyrir heilbrigðu sparisjóðskerfi og héldu fjölmennan fund um málefni þar sem hundruðir mættu. Spurð hvot þessir viðskiptahættir endurspegli heilbrigt sparisjóðskerfi segir hún of djúpt í árina tekið. „Við viljum heiðarleika og gegnsæi og það sem vakir fyrir okkur er að það sé heiðarlegt og grandvart fólk sem standi á bak við framboðið," segir Rakel en bætir við að hún vilji að málið sé skoðað ofan í kjölinn. Hún segist ekki hafa rætt við Arnar eftir að málið kom upp. Hún segir það mikilvægt að fá að heyra hið rétta í málinu og að hann fái að svara fyrir sig. „Okkur þykir sárast að umræðan skuli snúast upp í þetta í kringum Byr. Við vonum bara að heiðarleiki verði í fyrirrúmi og það sitji ekki áfram menn í stjórn sem skari að eigin köku," segir Rakel en aðalfundur Byrs verður haldin á morgun. Í framboði gegn þeim er stjórn Jóns Kr. Sólnes. Eins og Vísir sagði frá fyrr í morgun þá er tilraunin til þess að selja stofnfjárbréfin til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu.
Tengdar fréttir Vilja stýra Byr Hópur stofnfjáreigenda og annarra velunnara Byrs sparisjóðs hefur ákveðið að bjóða sig til forystustarfa í sparisjóðnum á aðalfundi hans þann 13. maí. Í hópnum er meðal annars Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels. 10. maí 2009 15:15 Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45 Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44 FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10 Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05 Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira
Vilja stýra Byr Hópur stofnfjáreigenda og annarra velunnara Byrs sparisjóðs hefur ákveðið að bjóða sig til forystustarfa í sparisjóðnum á aðalfundi hans þann 13. maí. Í hópnum er meðal annars Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels. 10. maí 2009 15:15
Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45
Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44
FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10
Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05