Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans Valur Grettisson skrifar 12. maí 2009 10:45 Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME. „
Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest í eigu Arnars Bjarnarsonar sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. Þá kom fram að skilanefnd Landsbankans, með Lárus Finnbogason í forsvari, hafi viljað selja eignarhaldsfélaginu Reykjavík Invest 2,6 prósentu hlut í stofnfjárbréfum Byrs. Sjálfur er hann endurskoðandi félagsins. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er engum heimilt að fara með meira en 5 prósent af heildaratkvæðamagni í sparisjóði, hvort sem yfirráð yfir atkvæðarétti byggjast á beinni eða óbeinni hlutdeild í stofnfé sparisjóðs. Aðalfundur BYRS verður haldinn á morgun en í síðustu viku seldi skilanefnd Landsbankans félaginu Reykjavik Invest 2,6 prósent af hlut sínum í sparisjóðnum og heldur eftir rétt tæpum 5 prósentum. Eftir að fréttastofa sagði frá málinu í gær sendi skilanefnd Landsbankans frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að salan hefði verið háð samþykki nefndarinnar og hún veiti ekki sitt samþykki. Samkvæmt heimildum þá kom nefndin ekki saman fyrr eftir að fréttir voru sagðar af hlutnum sem átti að selja. Í kjölfarið var ákveðið að selja ekki hlut Landsbankans til Reykjavík Invest og yfirlýsing þess eðlis send út til fjölmiðla. Í viðtali við fréttastofuna í gær sagði Lárus ekki vilja gefa upp hvað hefði verið borgað fyrir stofnfjárhlutinn eða hvernig hann hefði verið fjármagnaður, líkt og salan væri búin að eiga sér stað. Ástæðan fyrir því að Arnar vildi ná hlutnum í gegnum Reykjavík Invest var til þess að öðlast atkvæðarétt á aðalfundi Byrs á morgun. Arnar er í framboði ásamt fleirum til stjórnar Byrs. Sú stjórn er runnin undan rifjum siðvæðingarhjónanna Sveins Margeirssonar og Rakelar Gylfadóttur. Þau héldu fjölmennan fund stofnfjáreiganda þar sem þau vildu stuðla að heilbrigðu sparisjóðskerfi á Íslandi með tilheyrandi siðvæðingu. Ekki náðist í þau hjónin þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þegar haft var samband við Gylfa Magnússon, viðskiptaráðherra, sagðist hann ekki hafa geta kannað þetta mál til hlítar og því vildi hann ekki tjá sig um það.
Tengdar fréttir Skagamenn slegnir út af laginu - 3-0 tap fyrir Þór í 1. deildinni Flestir spáðu Skagamönnum rakleiðis upp í efstu deild karla í knattspyrnu en eftir fall síðasta sumar fer tímabil þeirra í 1. deildinni ekki vel af stað. Stuðningsmenn Þórs sáu ástæðu til að biðja þá afsökunar á fýluferðinni norður á Akureyri þar sem sprækir Þórsarar unnu öruggan 3-0 sigur á heillum horfnum Skagamönnum. 10. maí 2009 16:14 Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44 FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10 Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05 Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fleiri fréttir Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Sjá meira
Skagamenn slegnir út af laginu - 3-0 tap fyrir Þór í 1. deildinni Flestir spáðu Skagamönnum rakleiðis upp í efstu deild karla í knattspyrnu en eftir fall síðasta sumar fer tímabil þeirra í 1. deildinni ekki vel af stað. Stuðningsmenn Þórs sáu ástæðu til að biðja þá afsökunar á fýluferðinni norður á Akureyri þar sem sprækir Þórsarar unnu öruggan 3-0 sigur á heillum horfnum Skagamönnum. 10. maí 2009 16:14
Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44
FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10
Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05