Frístundastrætó í Grafarvogi 3. september 2009 05:00 Á fundi borgarstjórnar í fyrradag var tillaga Samfylkingar um frístundastrætó í Grafarvogi samþykkt einróma. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir íbúa en í þessu stóra og barnmarga hverfi má ætla að í hverri viku séu um 15.000 ferðir farnar vegna frístundastarfs. Þetta kostar foreldra bæði mikinn tíma og peninga en ef miðað er við forsendur ríkisskattstjóra, 92 kr/km, kemur í ljós að heildarkostnaður foreldra af skutlinu er rúmlega 33 milljónir á mánuði. Ef reiknað er með að hver ferð taki um 20 mínútur að meðaltali sést að auk þess fara í hverjum mánuði um 20.000 klukkustundir af tíma foreldra í skutlið. Til að spara um eina og hálfa milljón á mánuði voru hverfisleiðirnar í Grafarvogi skornar niður 1. febrúar síðastliðinn og ganga síðan aðeins á 60 mínútna fresti. Það var óheppileg þróun en við það hættu langflest börn að geta nýtt sér vagnana til að komast í frístundir. Þessari þróun vilja íbúar í Grafarvogi snúa við en að frumkvæði hverfisráðs Grafarvogs eru nú skólar og frístundaaðilar í Grafarvogi að vinna með hverfisráðinu og þjónustumiðstöð Grafarvogs að grænni samgöngustefnu hverfisins. Að útrýma þörfinni fyrir skutlið er þó ekki aðeins spurning um bætt öryggi í umferðinni, tíma og peninga, minni mengun og eftirsóknarverðan hverfisbrag. Hér er ekki síður um réttlætismál að ræða því það búa ekki öll börn svo vel að foreldrar þeirra hafi tíma eða aðstöðu til að skutlast. Þetta hefur íþróttafélagið Fjölnir bent á og lagt ríka áherslu á að íþróttastarfið standi öllum jafnt til boða. Ef áfram er stuðst við forsendur ríkisskattstjóra sést að skutl vegna þriggja æfinga í viku kostar hátt í 7.000 kr á mánuði. Hætt er við að það sé meira en margir ráða við - ekki síst þar sem börnin eru mörg. Samþykkt borgarstjórnar á tillögu Samfylkingarinnar um frístundastrætó boðar tímamót og vonandi endalok skutlsins. Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Á fundi borgarstjórnar í fyrradag var tillaga Samfylkingar um frístundastrætó í Grafarvogi samþykkt einróma. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir íbúa en í þessu stóra og barnmarga hverfi má ætla að í hverri viku séu um 15.000 ferðir farnar vegna frístundastarfs. Þetta kostar foreldra bæði mikinn tíma og peninga en ef miðað er við forsendur ríkisskattstjóra, 92 kr/km, kemur í ljós að heildarkostnaður foreldra af skutlinu er rúmlega 33 milljónir á mánuði. Ef reiknað er með að hver ferð taki um 20 mínútur að meðaltali sést að auk þess fara í hverjum mánuði um 20.000 klukkustundir af tíma foreldra í skutlið. Til að spara um eina og hálfa milljón á mánuði voru hverfisleiðirnar í Grafarvogi skornar niður 1. febrúar síðastliðinn og ganga síðan aðeins á 60 mínútna fresti. Það var óheppileg þróun en við það hættu langflest börn að geta nýtt sér vagnana til að komast í frístundir. Þessari þróun vilja íbúar í Grafarvogi snúa við en að frumkvæði hverfisráðs Grafarvogs eru nú skólar og frístundaaðilar í Grafarvogi að vinna með hverfisráðinu og þjónustumiðstöð Grafarvogs að grænni samgöngustefnu hverfisins. Að útrýma þörfinni fyrir skutlið er þó ekki aðeins spurning um bætt öryggi í umferðinni, tíma og peninga, minni mengun og eftirsóknarverðan hverfisbrag. Hér er ekki síður um réttlætismál að ræða því það búa ekki öll börn svo vel að foreldrar þeirra hafi tíma eða aðstöðu til að skutlast. Þetta hefur íþróttafélagið Fjölnir bent á og lagt ríka áherslu á að íþróttastarfið standi öllum jafnt til boða. Ef áfram er stuðst við forsendur ríkisskattstjóra sést að skutl vegna þriggja æfinga í viku kostar hátt í 7.000 kr á mánuði. Hætt er við að það sé meira en margir ráða við - ekki síst þar sem börnin eru mörg. Samþykkt borgarstjórnar á tillögu Samfylkingarinnar um frístundastrætó boðar tímamót og vonandi endalok skutlsins. Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar