Sendiherrann reddaði United-derhúfu fyrir Hreiðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. júní 2009 19:15 Hreiðar Guðmundsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Aleksandar Djorovic
Það var sendiherra Íslands í Eistlandi sem kom Hreiðari Guðmundssyni markverði til bjargar í landsleiknum í dag með því að útvega honum Manchester United-derhúfu. Þetta sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í samtali við Vísi í dag. Leiknum í dag lauk með jafntefli, 25-25, en Ísland náði þar með efsta sæti riðilsins þar sem að Noregur tapaði í Makedóníu í dag. Það hlýtur að teljast afar óvenjulegt að leikmenn þurfi að hafa áhyggjur af sólinni í handbolta enda íþróttin leikin innanhúss. „Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður á mínum ferli," sagði Guðmundur. „Í seinni hálfleik skein sólin í andlitið á Hreiðari og varnarmönnunum. Við mótmæltum þessu mikið og kröfðumst þess að leikurinn yrði stöðvaður. En það var ekki hlustað á okkur." „Hreiðar varði ekki eitt einasta skot á þessum tíma. Hann og varnarmennirnir voru algjörlega blindaðir af sólinni. Það var ekki möguleiki að spila við þessar aðstæður." „En þá ákveður Hannes Heimisson sendiherra, sem var á leiknum með konu sinni og börnum, að hlaupa út í bíl því með honum var drengur sem átti Manchester United-derhúfu. Húfunni var svo komið á okkur. Hannes var ótrúlega fljótur að hugsa og hann reddaði þessu fyrir okkur," sagði Guðmundur og hló enda enn gáttaður á þessu öllu saman. „Þetta var alveg fáránlegt. En ég held að þetta hafi þó ekki verið með ráðum gert hjá þeim," bætti hann við. „En ég held alveg örugglega að Hreiðar sé ekki United-maður.“
Handbolti Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Sjá meira