Innlent

Rakvélablöð hafa hækkað mikið í verði

Þessi hefur litlar áhyggjur af verðhækkunum á rakvélablöðum.
Þessi hefur litlar áhyggjur af verðhækkunum á rakvélablöðum.

Kannski er það bara ímyndun í mér, en mér hefur sýnst eins og fleiri karlmenn séu órakaðir eða hreinlega skeggjaðir eftir að kreppan skall á.

Engin furða, því rakvélablöðin eru ekki gefin. Á Íslandi hefur Gillette mjög sterka markaðshlutdeild og varla sjást önnur blöð í verslunum. Að sögn Þórhalls Baldurssonar sölustjóra hjá Ísam ræðst verð blaðanna á gengi evrunnar.

„Frá því í janúar 2008 hafa engar hækkanir átt sér stað nema þær sem tengjast genginu," segir hann. Í janúar var evran á 90 kr., nú er hún á um 170 kr.

Nokkrar tegundir af Gillette blöðum eru í boði en fimm blaða Fushion er nýjasta tegundin og er sögð gefa mýkstan rakstur. Átta blaða pakki er sagður duga í sex mánuði. Á föstudaginn kostaði átta blaða pakki 2.798 kr í Bónus. Í Krónunni kostaði 4 blaða pakki 2.799 kr. Það borgar sig greinilega að bera saman verð.

Vilji skeggmenn berjast á móti straumnum má benda á rakarastofuna Herramenn í Kópavogi (www.herramenn.is). Þar er boðið upp á ýmsa aðra möguleika í rakstri. Atli skrifar:

„Ég fjárfesti í nýtísku gamaldags rakvél fyrir rúmum tveimur árum. Mörgum fannst þetta vera skrítið uppátæki hjá mér. Ég keypti í leiðinni lager af rakvélablöðum í hana. Hver pakki með 10 blöðum kostar 700 kr. hjá Herramönnum. Ég get notað hvert blað oftar en Gillette blöðin. Sama sagan er með raksápuna, ég notast við alvöru harða raksápu og bursta. Mikill verðmunur þar líka."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×