Benedikt tekur við kvennaliði KR 5. maí 2009 15:17
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara KR í körfubolta karla, skrifar á morgun undir samning um að taka að sér þjálfun kvennaliðs félagsins. Vísir sló á þráðinn til Benedikts og spurði hann hvernig þessi breyting hefði komið til. "Maður er auðvitað KR-ingur og eins góð eins og umgjörðin er orðin þarna, var bara niðurstaðan sú að mig langaði að vera áfram," sagði Benedikt. Hann var lengi búinn að vera að hugsa málið og var með tilboð frá nokkrum liðum á borðinu. "Vissulega voru nokkur lið sem fengu mig til að hugsa, en ég er partur af góðu teymi hjá KR og vil halda því áfram," sagði Benedikt. En hvernig verður að skipta úr karlaboltanum og yfir í kvennakörfuna? "Ég veit svo sem lítið um kvennaþjálfun en ég kem bara til með að þjálfa þetta lið alveg eins og ég þjálfa strákana. Það er sennilega of seint fyrir svona gamlan hund eins og mig að fara eitthvað að breyta því," sagði Benedikt léttur í bragði. "Ég held að þetta eigi eftir að verða virkilega gaman ef þær laga sig að mér og ég að þeim. Ég er að taka við mjög góðu búi þarna," sagði Benedikt að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Enski boltinn Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Sjá meira