Ekki frumvarp um að reka mig segir Davíð Stígur Helgason skrifar 18. febrúar 2009 06:00 Viðskiptanefnd Alþingis yfirheyrði Davíð Oddsson og Eirík Guðnason seðlabankastjóra á fundi sínum í gærmorgun. Vísir/GVA
Bankastjórar Seðlabankans telja að Davíð Oddsson þurfi ekki að víkja sem formaður bankastjórnarinnar þótt frumvarp sem kveður á um breytingar á yfirstjórninni verði að lögum. Bankastjóraembættið sem kveðið er á um í frumvarpinu sé í raun sama embætti og formaður bankastjórnar. Starfið þurfi því ekki að auglýsa að nýju. Bankastjórarnir hafna þar með viðhorfum stjórnarliða, en fyrir liggur að einn megintilgangurinn með frumvarpi forsætisráðherra er að koma bankastjórninni frá, eins og forsprökkum nýrrar ríkisstjórnar hefur orðið tíðrætt um að þurfi að gera. Umsögn bankastjóranna tveggja, Davíðs og Eiríks Guðnasonar, um frumvarpið var gerð opinber í gær. Í henni gagnrýna þeir nær öll atriði frumvarpsins, segja það afar ófullkomið, villandi, ruglingslegt og ógagnsætt, auk þess sem þeir segja greinina um að núverandi bankastjórn skuli víkja hafa á sér „einkar ógeðfelldan brag“. Fyrirbyggja þurfi að úr frumvarpinu verði „stjórnsýslubastarður“. Þá segir einnig í umsögninni að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi staðfest við forsætisráðuneytið að Davíð Oddsson sé hæfur til að gegna starfi seðlabankastjóra. Davíð og Eiríkur komu fyrir viðskiptanefnd Alþingis í gærmorgun og svöruðu fyrirspurnum um athugasemdir sínar við frumvarpið. Mun fundurinn hafa verið hinn vinsamlegasti. Ingimundur Friðriksson, sem nýverið lét af starfi seðlabankastjóra að áeggjan Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, mætti til fundarins á undan þeim og gerði grein fyrir sínum athugsemdum. Ekki tókst að afgreiða frumvarpið úr nefndinni í gærmorgun eins og hugur stjórnarliða hafði staðið til. Aukafundur hefur verið boðaður í nefndinni í dag.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira