Með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi Jórunn Frímannsdótti skrifar 15. október 2009 06:00 Borgarfulltrúi Björk Vilhelmsdóttir fer stórum orðum í grein í Fréttablaðinu í gær um að til standi að flytja þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða 300 metra til austurs. Hún gerir samráðsleysi og ákvarðanatöku borgarstjóra að umtalsefni en hefur greinilega gleymt að kynna sér staðreyndir málsins. Þær eru eftirfarandi: Um leið og ljóst var á síðasta ári að verulegur samdráttur væri líklegur í tekjum borgarinnar á sama tíma og aukning yrði á þjónustu lá fyrir að leita þyrfti allra leiða til að draga úr kostnaði borgarinnar. Þar með talið að nýta betur húsnæði stofnana borgarinnar. Velferðarráði öllu og þar með talið fulltrúum minnihlutans var fullkunnugt um þær ráðagerðir. Strax var gengið í að skoða alla leigusamninga og í ljós kom að leigusamningur Þjónustumiðstöðvarinnar rennur út á árinu 2010. Möguleikinn á að flytja þjónustumiðstöðina – í Höfðatorg eða annað – var kynntur og ræddur við framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvarinnar strax fyrir jól á árinu 2008. Á vormánuðum 2009 var haldið áfram að yfirfara húsnæðismál í borginni. Eftir að hafa skoðað aðra kosti sem til greina komu fyrir húsnæði undir þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, m.a. í miðborginni, var staðan metin þannig að hagkvæmast væri, út frá fjárhag, aðgengi og þjónustu, að flytja þjónustumiðstöðina í Höfðatorg. Þar eru fyrir fjölmargar stofnanir borgarinnar þ.m.t. aðalskrifstofur Velferðarsviðs, Framkvæmda- og eignasviðs, Umhverfis og samgöngusviðs, þjónustuver og símaver. Borgarfulltrúinn bendir einnig á að hundruð manna komi í hverri viku í þjónustumiðstöðina. Hún telur það of mikinn fjölda til að beina í nýtt, stórt og bjart húsnæði í Höfðatorgi, en telur betra að beina borgarbúum sem óska eftir þjónustu að Tjarnargötu 12. Þar gleymir borgarfulltrúinn aftur að kynna sér staðreyndir s.s. að aðgengi er þar þröngt, húsnæðið er á þremur hæðum og lítið er af bílastæðum. Loks má benda á að staðsetningin að Tjarnargötu 12 er ekki síður en Höfðatorg í útjaðri þess svæðis sem þjónustumiðstöðinni er ætlað að sinna. Ég hvet borgarfulltrúa og góða samstarfskonu í velferðarráði til margra ára, Björk Vilhelmsdóttur, að láta af rangfærslum um sjálfsögð og nauðsynleg hagræðingarmál og beina kröftum sínum frekar að því að hugsa upp leiðir til að borgin geti áfram veitt nauðsynlega grunnþjónustu til íbúa við erfiðar aðstæður – þó í nýju húsnæði sé. Þingmönnum Samfylkingar og Vinstri grænna var tíðrætt um nauðsyn samstöðu við erfiðar aðstæður í umræðum á Alþingi um stefnu forsætisráðherra á dögunum. Ég hvet samstarfsfólk mitt í þessum flokkum í borgarstjórn til að ganga á undan með góðu fordæmi á okkar sameiginlega vettvangi. Höfundur er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar