Ódýrt og afar mikilvægt öryggistæki 30. október 2009 06:00 Nú er skammdegið skollið á og þá er mikilvægt að allir vegfarendur séu með endurskinsmerki svo að þeir séu sem öruggastir í umferðinni. Myrkrið veldur því að ökumenn sjá oft illa í kringum sig þrátt fyrir götulýsingu og yfirleitt góð ökuljós á bifreiðum. Endurskinsmerki gera það að verkum að ökumenn taka mun fyrr eftir gangandi vegfarendum þegar dimmt er úti. Mikilvægt er að endurskinsmerkin séu vel sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur, þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða. Allir ættu að finna endurskin við hæfi en til eru margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, endurskinsborðar, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og gott er að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi. Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum. Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingafatnaði þegar æft er utandyra. Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattahálsbönd og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins ef farið er í reiðtúr. Líklegt er að til séu endurskinsmerki í skúffum og skápum á flestum heimilum og þá er um að gera að nota þau merki, enda gera þau lítið gagn ef þau eru ekki notuð. Kaupþing hóf í vikunni endurskinsmerkjaátak í samstarfi við Umferðarstofu og er hægt að nálgast endurskinsmerki í útibúum Kaupþings víða um land. Að öðrum kosti er hægt að fá endurskinsmerki í mörgum verslunum, apótekum og bensínstöðvum. Sjáumst í umferðinni, vel sýnileg. Höfundur er fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Nú er skammdegið skollið á og þá er mikilvægt að allir vegfarendur séu með endurskinsmerki svo að þeir séu sem öruggastir í umferðinni. Myrkrið veldur því að ökumenn sjá oft illa í kringum sig þrátt fyrir götulýsingu og yfirleitt góð ökuljós á bifreiðum. Endurskinsmerki gera það að verkum að ökumenn taka mun fyrr eftir gangandi vegfarendum þegar dimmt er úti. Mikilvægt er að endurskinsmerkin séu vel sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur, þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða. Allir ættu að finna endurskin við hæfi en til eru margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, endurskinsborðar, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og gott er að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi. Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum. Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingafatnaði þegar æft er utandyra. Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattahálsbönd og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins ef farið er í reiðtúr. Líklegt er að til séu endurskinsmerki í skúffum og skápum á flestum heimilum og þá er um að gera að nota þau merki, enda gera þau lítið gagn ef þau eru ekki notuð. Kaupþing hóf í vikunni endurskinsmerkjaátak í samstarfi við Umferðarstofu og er hægt að nálgast endurskinsmerki í útibúum Kaupþings víða um land. Að öðrum kosti er hægt að fá endurskinsmerki í mörgum verslunum, apótekum og bensínstöðvum. Sjáumst í umferðinni, vel sýnileg. Höfundur er fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar