Skoðun

Þegar á reynir

Anna Stefánsdóttir og Kristján Sturluson skrifar
Rauði kross Íslands hefur það hlutverk í almannavörnum landsins að sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sjálfboðaliðar Rauða krossins starfa í 50 deildum sem mynda neyðarvarnanet um allt land og hafa gert sérstakar áætlanir um viðbrögð í kjölfar áfalla. Það gerir Rauða krossinum kleift að bregðast tafarlaust við neyð heima í héraði og á landsvísu.

Neyðarviðbrögð
anna stefánsdóttir
Neyðaraðstoð er eitt elsta og stærsta verkefni Rauða krossins um allan heim. Aðstoðin er margvísleg og tekur mið af aðstæðum og neyð hverju sinni. Snemma árs 2009 opnaði Rauði krossinn Rauðakrosshúsið sem er eins konar fjöldahjálparstöð í Borgartúni 25 í Reykjavík. Þar er þolendum efnahagsþrenginga veitt ráðgjöf um þau úrræði sem eru til staðar í samfélaginu en Rauðakrosshúsið er einnig fræðslu- og sjálfboðamiðstöð fyrir almenning. Einnig er skemmst að minnast Suðurlandsskjálftanna árið 2008 þar sem fjölmargir nutu aðstoðar Rauða krossins í formi sálræns stuðnings og matvælaaðstoðar í fjöldahjálparstöðvum, bæði á Selfossi og í Hveragerði, og í gegnum Hjálparsímann 1717. Annað dæmi um verkefni sem Rauði krossinn sinnir eru viðbrögð vegna inflúensufaraldurs sem nú virðist vofa yfir.

LIÐSAUKI óskast!Nú, í Rauðakrossvikunni 12. til 17. október, verður leitast við að treysta viðbragðskerfi Rauða krossins enn frekar og þar með velferð almennings í kjölfar slysa, náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða. Óskað er eftir LIÐSAUKA við Rauða krossinn, þ.e. fólki með mismunandi bakgrunn sem hefur áhuga á mannlegum samskiptum og vill rétta þolendum áfalla hjálparhönd. Verkefnin geta verið margvísleg en eiga það sameiginlegt að í þau þarf sjálfboðaliða tafarlaust, meðal annars til að veita skyndihjálp, sálrænan stuðning, skrá upplýsingar, elda mat eða túlka af erlendum tungumálum. Við miklar hamfarir eða stórslys gætu sérþjálfaðir sjálfboðaliðar Rauða krossins þurft LIÐSAUKA við hin ýmsu verkefni sem jafnan snúa að því að sjá þolendum fyrir helstu nauðsynjum á borð við fæði, klæði og húsaskjól.

Eftir að hafa skráð sig í LIÐSAUKA mun fólki gefast tækifæri til að sækja stutt námskeið og það þarf síðan að vera tibúið til að bregðast við ef þannig aðstæður skapast. Að sjálfsögðu vona allir að ekki komi til stórra áfalla þannig að kalla þurfi út LIÐSAUKA en við þurfum alltaf að vera viðbúin. Þátttakan í LIÐSAUKA er þannig ekki bindandi dag frá degi og hentar því vel fólki sem getur alla jafnan ekki gefið tíma sinn nema í tímabundin verkefni.

Reynslan sýnir að þegar stór áföll verða vilja allir Íslendingar koma til hjálpar. Þá er nauðsynlegt að að hafa skráð sig til slíkra verkefna og fengið fræðslu um þau áður en neyðarkallið kemur. Þetta er hægt að gera með því að skrá sig í LIÐSAUKA Rauða krossins.

Anna Stefánsdóttir er formaður og Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.




Skoðun

Skoðun

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar

Sjá meira


×