Viðskipti innlent

Fráleitt að segja að Landic muni selja eignir vegna Stoða

Páll Benediktsson fjölmiðlafulltrúi Landic Property segir það fráleitt að segja að Landic muni selja eignir í Danmörku vegna erfiðleika Stoða. "Þetta er bara enn eitt bullið í Börsen og við vísum því til föðurhúsa," segir Páll.

Eins og fram kemur hér á Vísi var Börsen með vangaveltur um að Landic myndi selja eignir vegna erfiðleika Stoða, sem á 39% í Landic, og að slíkt gæti lækkað fasteignaverð í Danmörku.

Páll segir að ekkert sé í kortunum hjá þeim hvað varðar sölu á eignum, hvorki í Danmörku né annarsstaðar.

"Við eru ekki fjármagnaðir af Stoðum og þótt þeir séu stór hluthafi erum við sjálfstætt starfandi félag," segir Páll.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×