Staðhæfingum hafnað í skýrslu Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. maí 2008 06:00 Ríkið fær gagnrýni frá matsfyrirtækinu Fitch fyrir þensluhvetjandi aðgerðir á uppgangstímum. Hér sjást Björn Bjarnason, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde. Fréttablaðið/Auðunn
Neikvæðar horfur alþjóðlega matsfyrirtækisins Fitch á lánshæfi bankanna ráðast af því að landið sé ekki nógu vel undir það búið að standa af sér langvarandi áhættufælni á alþjóðamörkuðum. Fyrirtækið sendi í gær frá sér sérstaka skýrslu um landið og bankana. Þar er nokkrum staðhæfingum hafnað, svo sem að landið geti flokkast með nýmarkaðsríkjum og að líkur séu á að hér verði frjálst flæði fjármagns takmarkað. „Ísland er þróað markaðshagkerfi og bönkum landsins í sjálfs vald sett að taka ákvarðanir án ríkisafskipta,“ segir í skýrslunni, en bætt er við að eftir á að hyggja hefðu eftirlitsstofnanir fjármála mátt huga betur að uppbyggingu bankanna, hraða útrásar og leiðum í fjármögnun. Þá er bent á að stjórn peningamála sé hér ábótavant og að Seðlabankann skorti stuðning í að koma böndum á verðbólgu. Í þeim efnum er bæði bent á illa skilgreint hlutverk Íbúðalánasjóðs og hluti á borð við skattalækkanir ríkisins á þenslutímum. „Þróunin hefur blásið nýju lífi í umræðu um kosti evruaðildar,“ segir Fitch og segir hana myndu draga úr ójafnvægi hagkerfisins hér um leið og eyða gengisáhættu. „Líkur á að Ísland nái verðbólgu- og stýrivaxtagildum evrusvæðisins í nánustu framtíð eru hins vegar fjarlægar.“
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira