Draugarnir flytja ekki með Gunnar Lárus Hjálmarsson skrifar 23. september 2008 05:30 Sveinn Friðfinnsson mun sakna Staðarskála. Fréttablaðið/Vilhelm
Veitingahúsa- og sjoppumenning Hrútafjarðar tekur nú algjörum stakkaskiptum. Búið er að rífa Brú og nýr Staðarskáli verður opnaður vestanmegin í firðinum á fimmtudaginn. Nú fer því hver að verða síðastur að sækja hinn sögufræga Staðarskála heim. Kokkurinn Sveinn Friðfinnsson segir mikinn söknuð að gamla staðnum. „Ég kom hingað fyrst fyrir einum þrjátíu árum, en hef unnið hér í ein tólf ár, minnir mig. Mér þykir leitt að kveðja gamla staðinn, en það eru nú svo sem ekki allir jafn gamaldags og vitlausir og ég." Sveinn segist fylgja með yfir ána. „Ég er búinn að skoða nýja staðinn og líst vel á. Ég á ekki von á að það verði neinar meiri háttar breytingar á matseðlinum. Það hefur gefist vel að bjóða upp á þrjár tegundir af heimilismat. Kúnnunum líkar það vel, ég er einmitt að horfa á einn núna sem er að hesthúsa hálft kíló af plokkfiski með bestu lyst. Það er nýr matseðill á hverjum degi." Sveinn segir stundum koma fyrir að fjórir réttir séu á matseðlinum, ef hann vaknar þannig stemmdur. „Vaktirnar eru góðar og ég sef í kjallaranum, einn í húsinu. Eða ekki alveg einn. Það eru góðar vættir með mér, sumir myndu kalla það drauga. En ég er hræddur um að ég fái þá ekki til að flytja í nýja húsið." Stöðvarstjórinn Kristinn Guðmundsson segir nýja staðinn munu heita N1 - Staðarskáli. „Verslunin verður eins og Nestis-verslanirnar í Reykjavík en veitingasalan verður svipuð og hún hefur verið, nema við bætum einhverju við, til dæmis pitsum." Kristinn segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvaða starfsemi fari fram í gamla Staðarskála. Aðeins eitt er víst: Nýi Staðarskáli verður opnaður á slaginu klukkan átta á fimmtudagsmorguninn.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira