Erlent

Fritzl neyddi konu sína á makaskiptaklúbb

Óli Tynes skrifar
Josef Fritzl.
Josef Fritzl.

Sextíu og fimm ára gamall arkitekt hefur sagt dagblaðinu Österreich frá því að Josef Fritzl hafi neytt konu sína Rosemarie til þess að koma með sér á makaskiptaklúbb.

Þar var hún sett út í horn með handklæði um sig miðja og látin horfa á meðan Josef svalaði fýsnum sínum á yngri konu.

Arkitektinn Paul S. er 65 ára gamall. Hann kynntist Josef Fritzl þegar hann bauð hús sitt til sölu árið 1997. Fritzl var einn þeirra sem kom til að skoða það.

Ekkert varð úr kaupunum en þeir spjölluðu lengi saman um kynlíf og getu.

Fritzl trúði þessum nýja vini sínum frá því að það væri ekkert mál að stunda mikið kynlíf á þeirra aldri. Hann gaf honum uppskrift sem hann notaði sjálfur.

Fritzl blandaði saman þrem stinningarlyfjum, Viagra, Levitra og Cialis. Þennan kokteil sagði hann duga sér vel.

Nokkrum vikum seinna var Paul S. boðið á makaskiptaklúbbinn Caribik í Amstetten. Það er einn af stærstu slíkum klúbbum í Austurríki.

Paul S. segir að sér hafi liðið hálf illa yfir að vera elstur á staðnum, en þá hafi hann komið auga á Fritzl.

Hann kom askvaðandi inn og var sýnilega heimavanur. Með honum var kona hans Rosemarie, sem hann kom fram við eins og hund.

Með handklæði um sig miðja var hún sett út í horn meðan Fritzl eðlaði sig með ókunnri yngri konu.

Þegar hann hafði lokið sér af yfirgáfu hjónin staðinn. Fóru á heimili sitt þar sem dóttir þeirra sat í kjallaranum með þrem börnum sínum -og föðurins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×