Flaggari handtekinn í Alþingishúsinu í gær Guðjón Helgason skrifar 22. nóvember 2008 12:16 Bónusfánin dregin að húni á Alþingishúsinu 10. nóvember sl.
Annar þeirra sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu í mótmælum fyrir hálfum mánuði var handtekinn í gærkvöldi. Lögregla greip manninn þar sem hann var í vísindaferð með háskólafélögum á Alþingi. Honum var umsvifalaust gert að afplána eldri dóm án lögbundins fyrirvara og það degi fyrir boðuð mótmæli í miðbænum. Tveir menn drógu Bónusfána að húni á Alþingishúsinu í mótmælum tíunda nóvember. Annar var handtekinn en hinn slapp. Sá var í vísindaferð í þinghúsinu í gær með samnemendum í Háskóla Íslands. Kennsl voru borin á hann og lögregla kölluð til. Maðurinn var þegar handtekinn og strax færður til afplánunar vegna eldri dóms frá 2006. Þá hafði maðurinn klifrað upp í krana á Kárahnjúkum í virkjunarmótmælum. Hann kaus frekar að afplána átján daga í fangelsi en að borga sekt. Móðir mannsins staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að hann hafi verið kallaður til afplánunar í ágúst í fyrra en á fimmta degi hafi þeirri afplánun óvænt verið frestað svo hægt yrði að koma öðrum mótmælanda að í afplánun. Manninum hafi verið tjáð að afplánun hans yrði lokið síðar. Síðan hafi engin slík tilkynning borist og segir móðir mannsins að afplánunina hafi borið mjög brátt að - sér í lagi í ljósi þess að í dag séu boðuð mótmæli í miðbænum vegna efnahagsástandsins sem sonur hennar hefði tekið þátt í. Samkvæmt lögum skal afplánun hefjast eftir bréflega tilkynningu og með minnst þriggja vikna fyrirvara. Þó megi hefja afplánun án fyrirvara fremji viðkomandi dómþoli refsivert afbrot í millitíðinni, reyni að koma sér undan refsingu eða almannahagsmunir mæli með því. Samkvæmt lögum skal afplánun vera samfelld. Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarmaður, segir vart lagaheimild fyrir því að slíta afplánun í sundur líkt og gert hafi verið í þessu máli. Slíkt verði að skoða en það geti valdið fólki ómældum spjöllum. Hann segir rannsóknarvert hversu brátt afplánunin nú hafi borið að. Lögregla vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í morgun.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira